Mánudaginn 3. mars hefst leiklistarnámskeið á vegum leikfélagsins sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun.

Námskeiðið stendur í tvær vikur, hist verður sex sinnum, á mán., fim. og lau. Aldurstakmark er 21 árs og námskeiðsgjald er 7.500 kr. fyrir utanfélagsmenn en skráðir félagsmenn greiða 2.500 kr.

Athugið að skráning í félagið er öllum opin gegn 2.500 kr. félagsgjaldi. Sjá nánar hér.
Leiðbeinandi er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Hægt er að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á lk@kopleik.is.

Lesa nánar: Leiklistarnámskeið fyrir nýliða