Leikárinu er að ljúka en undirbúningur fyrir það næsta er þegar hafinn. Hér með er boðað til samlesturs á verki sem ætlunin er að sýna á hausti komanda. Verkið er Á rúmsjó eftir Sławomir Mrożek í leikstjórn Arnar Alexanderssonar. Þeir sem hefðu áhuga á að taka þátt eru boðaðir á samlestur í Leikhúsinu mánudaginn 1. júní kl. 20.00. Aðrir félagsmenn eru einnig velkomnir.