Unglingadeild LK frumsýndi leikverkið Kemurr’á deit? síðastliðinn sunnudag. Ákveðið hefur verið að bæta við aukasýningu miðvikudaginn 18. des. kl. 19.30. Verkið er gert í hópvinnu með aðstoð leikstjórans Ástbjargar Rutar Jónsdóttur og fjallar um leitina að ástinni og ýmsar birtingarmyndir hennar. Fimmtán leikarar taka þátt í sýningunni. Hægt er að kaupa miða á Miðakaup.is eða senda pöntun á midasala@kopleik.is og er miðaverð aðeins 500 kr.