Verið er að uppfæra félagatal Leikfélagsins og breyta fyrirkomulagi við greiðslu félagsgjalds sem er nú 2.000 kr. Sendur verður greiðsluseðill í netbanka.

Þeir sem vilja greiða félagsgjald en fá ekki greiðsluseðil í netbanka geta beðið um það með því að senda póst á lk@kopleik.is með nafni og kennitölu.

Þeir sem fá greiðsluseðil en vilja ekki greiða félagsgjald eru beðnir um að senda okkur línu þar um á lk@kopleik.is. Þess má geta að ekki er nauðsynlegt að vera félagi til að gerast áskrifandi að fréttabréfi. Einnig má benda á að ýmis fríðindi fylgja félagsaðild, s.s. frímiðar á sýningar félagsins auk ýmissa tilboða á sýningar annarra, opnar æfingar og fleira..