Laugardaginn 3. nóvember var undirritaður rekstrar- og samstarfssamningur milli Kópavogsbæjar og Leikfélags Kópavogs í nýju húsnæði leikfélagsins að Funalind 2 í Kópavogi. LK, sem varð 50 ára á árinu, tók um leið formlega við húsnæðinu. Hér er um tímamót að ræða því húsið að Funalind verður fyrsta eiginlega leikhúsið í Kópavogi, þ.e. hús sem er ætlað fyrst og fremst til leiksýninga.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Gísli Björn Heimisson, formaður LK undirrituðu samninginn. Ómar Stefánsson,formaður bæjarráðs hélt stutta tölu og óskaði LK og bæjarbúum til hamingju með tímamótin.
Félagar í LK sýndu atriði við undirritunina og unglingadeildin framdi táknrænan gerning þegar tekið var við húsinu. Hönnunarvinnu er að mestu lokið og er stefnt að því að ljúka breytingum á húsinu svo að það henti leikhúsi fyrir áramót.
undirritun031107.png
Sýningadagatal
apríl 2018 |
||||||
---|---|---|---|---|---|---|
Mán | Þri | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
1
|
||||||
2
|
3
|
4
|
5
|
6
|
7
|
8
|
9
|
10
|
11
|
12
|
13
|
14
|
15
|
16
|
17
|
18
|
19
|
20
|
21
|
22
|
23
|
24
|
25
|
26
|
27
|
28
|
29
|
30
|