Leikfélagið stendur fyrir leiklistarnámskeiði fyrir börn í 6. og 7. bekk grunnskóla (11-12 ára) í haust. Leiðbeinandi er Ástbjörg Rut Jónsdóttir sem hefur mikla reynslu af leiklistarstarfi með börnum og unglingum. Námskeiðið hefst 4. september og verður vikulega á miðvikudögum, kl. 16.00-17.00 í Leikhúsinu að Funalind 2. Námskeiðinu lýkur með leiksýningu í lok nóvember. Námskeiðsgjald er 15.000 kr. en börn í Kópavogi geta fengið tómstundastyrk vegna námskeiðsins.

Lesa nánar: Leiklistarnámskeið fyrir 11-12 ára