Hin reglubundnu leiklistarnámskeið félagsins fyrir börn og unglinga hefjast 12. september næstkomandi og standa til loka nóvember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6.-7. bekkur) og hinsvegar fyrir 8. bekk og upp úr, þ.e. unglinga á aldrinum 13-16 ára.

Námskeiðin standa í 10 vikur og verða vikulega á þriðjudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp en kl. 17.15-19.15 hjá eldri. Námskeiðin fara fram í leikhúsinu sem er staðsett í Funalind 2. Í lok námskeiðs sýna hóparnir stutt, frumsamin leikrit.

Leiðbeinendur eru eins og á síðasta ári, þau Guðmundur L. Þorvaldsson og Gríma Kristjánsdóttir. Guðmundur er m.a. menntaður frá New York Film Academy auk fjölmargra námskeiða í leik og leikstjórn. Guðmundur sá um starf Unglingadeildar LK árið 2009, 2014 og 2015. Gríma er lærður leikari frá Copenhagen International School of Performing Arts og sá um unglingastarf LK árin 2010 og 2011.

Þeir sem óska frekari upplýsinga vegna námskeiðanna geta sent póst á lk@kopleik.is.

Námskeiðið kostar 20.000 kr. á mann fyrir þau yngri en 25.000 kr. fyrir eldri hóp. 25% systkinaafsláttur er í boði. Við bendum á að þátttakendur með lögheimili í Kópavogi geta nýtt sér tómstundastyrk Kópavogsbæjar upp í þátttökugjald. Hægt er að skrá sig á námskeiðið á Frístundavef Kópavogsbæjar og þar geta Kópavogsbúar nýtt sér frístundastyrk bæjarins.
Hér er að finna gátlista forráðamanna fyrir frístundastyrkinn.