Næsta þáttaröðin í sjónvarpsflokknum Sönn íslensk sakamál er í undirbúningi. Þættirnir verða átta og hefjast sýningar á Skjá1 í haust. Vegna þessa auglýsa framleiðendur eftir leikurum í alls konar hlutverk. Tökur hefjast í lok maí og munu standa með hléum fram í nóvember. Hlutverkin munu útheimta mismikla viðveru, allt frá því að taka fáeinar klukkustundir og upp í nokkra daga. Þeir sem vilja taka þátt eru beðnir um að senda tölvupóst til Jóns Tómasar Einarssonar framleiðanda, nonni82@gmail.com, og láta koma fram nafn, aldur og símanúmer og nýleg mynd þarf að fylgja.