Svarti kassinn, nýtt frumsamið leikverk, verður frumsýnt föstudaginn 28. apríl kl. 20.00 í Leikhúsinu. Verkefnið er samsköpunarverkefni í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og hefur verið í vinnslu með hléum síðan i nóvember.

Hvað er svarti kassinn? Er svarti kassinn Pandórubox? Er hann leikhús? Er hann lífið sjálft?
Réttu barni kassa og það reynir að opna hann. Réttu því fleiri kassa og barnið byggir turn. Forvitnin, þekkingarþráin og sköpunarþörfin er inngróin og við viljum rannsaka, uppgötva, eiga og nota það sem við finnum. Manneskjunni virðist skapað að skapa til góðs eða ills.
Við stöndumst ekki freistinguna að opna. Gægjumst saman ofan í svarta kassann og sjáum hvað kemur upp úr honum; eitthvað mannlegt, skrýtið, skemmtilegt, hræðilegt, sorglegt, eitthvað fyndið. Þessi svarti kassi er bara of spennandi til að láta hann í friði.

 

Tíu leikarar taka þátt í sýningunni en fjöldi annarra hefur lagt hönd á plóginn. Hrefna Friðriksdóttir er höfundur texta, Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu, Halldór Sveinsson frumsamdi tónlist og hljóðmynd er í höndum Harðar Sigurðarsonar og Hrefnu Friðriksdóttur. Listahópurinn Norðanbál sá um hönnun leikmyndar, María Björt Ármannsdóttir, Sólveig Dóra Hafsteinsdóttir og Una Guðjónsdóttir sjá um búninga ásamt fleirum og þær Sigrún Tryggvadóttir og Hrefna Friðriksdóttir um leikmuni í samstarfi vð leikhópinn.

Leikstjóri:
Ágústa Skúladóttir

Höfundur:
Hrefna Friðriksdóttir

Hugmyndavinna:
Ágústa Skúladóttir
Hrefna Friðriksdóttir
Hörður Sigurðarson

Samsköpun sýningar:
Ágústa Skúladóttir
Hrefna Friðriksdóttir
… og leikhópurinn

Leikarar:
Ástþór Ágústsson
Bryndís Haraldsdóttir
Guðlaug Björk Eiríksdóttir
Halldór Sveinsson
Huld Óskarsdóttir
Ingvar Örn Arngeirsson
Kristján J. Kristjánsson
María Björt Ármannsdóttir
Selma Rán Lima
Zindri Freyr Ragnarsson Caine

Aðstoðarmaður leikstjóra og sýningarstjóri:
Sigrún Tryggvadóttir

Sviðshreyfingar og dans:
Ágústa Skúladóttir og leikhópur

Lýsing:
Skúli Rúnar Hilmarsson

Sviðsmynd:
Listahópurinn Norðanbál

Leikmyndasmíði:
Frosti Friðriksson
Þorleifur Eggertsson
Örn Alexandersson
… og leikhópurinn

Búningar:
María Björt Ármannsdóttir
Sólveig Dóra Hafsteinsdóttir
Una Guðjónsdóttir
o.fl.

Förðun:
Erna Björk Hallbera Einarsdóttir
… og leikhópurinn

Hár:
Hrefna Friðriksdóttir
… og leikhópurinn

Leikmunir:
Sigrún Tryggvadóttir
Hrefna Friðriksdóttir
o.fl.

Hljóðmynd:
Hrefna Friðriksdóttir
Hörður Sigurðarson

Hljóð- og myndvinnsla:
Hörður Sigurðarson

Frumsamin tónlist:
Halldór Sveinsson

Fiðla og hljómborð:
Halldór Sveinsson

Önnur hljóðfæri:
Ástþór Ágústsson
Guðlaug Björk Eiríksdóttir
Ingvar Örn Arngeirsson
Kristján J. Kristjánsson
Selma Rán Lima
Zindri Freyr Ragnarsson Caine

Tæknikeyrsla:
Hörður Sigurðarson
Sigurður Jónsson
Skúli Rúnar Hilmarsson
Valdimar Lárus Júlíusson