Unglingadeild Leikfélagsins er kraftmikill hluti starfseminnar og einn sá ferskasti. Þar starfa skapandi og skemmtilegir krakkar á aldrinum 14−17 ára. Deildin er að vakna að nýju eftir dorm frá í nóvember. Eins og komið hefur fram mun Kristín Rós leiða hópinn og viðfangsefnin verða nokkrir sketsar og þættir. Fyrsti fundur unglingadeildarinnar á vorönninni verður þriðjudaginn 10. apríl kl. 17.00. Þeir sem ætla að taka þátt verða að skrá sig sem allra fyrst á lk@kopleik.is.