Nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki! var frumsýnt september í fyrra hjá Leikfélagi Kópavogs og vegna fjölda áskorana var ákveðið að gera framhald af verkinu og verður það nú sýnt undir nafninu Snertu mig – ekki! – Snertu mig. Verkið er gamandrama sem fjallar um samband hjóna og vinkonu þeirra, eða eins og vinsælt hefur verið í íslenskum bíómyndum, vandamál miðaldra karlmanns.
Snertu mig – ekki! – Snertu mig er eftir Örn Alexandersson en leikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir. Örn og Sigrún hafa lengi starfað saman með Leikfélagi Kópavogs. Sigrún hefur áður verið aðstoðarleikstjóri Arnar en nú snúa það hlutverkunum við og er Örn nú aðstoðarleikstjóri Sigrúnar. Verkið er í fullri lengd rúmlega ein og half klukkustund og taka þrír leikarar þátt í sýningunni, þau Halldóra Harðardóttir, Arnfinnur Daníelsson og Guðný Hrönn Sigmundsdóttir.
Lýsing er í höndum Skúla Rúnars Hilmarssonar og Hörður Sigurðarson sér um hljóðvinnslu. Leikmynd og búningar er í höndum hópsins. Frumsýning er áætluð 15.  september næstkomandi.