A_rumsjo_frontLeikstjórn: Örn Alexandersson
Aðstoðarleikstjórn: Sigrún Tryggvadóttir

Persónur og leikendur: 

Sá litli: Guðný Hrönn Sigmundsdóttir
Sá venjulegi: Guðlaug Björk Eiríksdóttir
Sá feiti: Stefán Bjarnarson
Netverji: Helgi Davíðsson
Þjónn: Haukur Ingimarsson

Búningar: Sigrún Tryggvadóttir Steinunn Hafsteinsdóttir Örn Alexandersson
Lýsing: Skúli Rúnar Hilmarsson
Hljóðmynd: Hörður Sigurðarson

Laugardagur 24. október – Frumsýning
Sunnudag 25. október 
Fimmtudagur 29. október 
Sunnudagur 1. nóvember
Fimmtudagur 5. nóvember 
Sunnudag 8. nóvember – Síðasta sýning

Sýningar hefjast kl. 20:00. Almennt miðaverð er 2.000 kr. Miðapantanir sendist í netfangið midasala@kopleik.is eða í síma 554 1985.

 

Um höfundinn
Sławomir Mrozek var pólskt leikritaskáld, rithöfundur og teiknimyndasöguhöfundur, fæddur árið 1930. Mrozek hóf ritferil sinn sem pólitískur blaðamaður á valdatíma Stalínismans. Fyrstu leikrit sín skrifaði hann á fimmta áratugnum. Leikverk hans hafa verið kölluð absúrdískur skáldskapur og var þeim ætlað að sjokkera áhorfendur með óraunhæfum uppákomum, pólitískum og sögulegum tilvísunum, bjögun og skopstælingu og er Á rúmsjó sem skrifað er árið 1961, dæmi um það. Mrozek fluttist frá Póllandi árið 1963 og bjó víðsvegar um heim fram til ársins 1996 er hann sneri aftur til Póllands og settist að í Kraká. Árið 2008 flutti hann til Frakklands og lést í Nice árið 2013, 83 ára að aldri.
Leikstjórinn
Örn Alexandersson hefur starfað með Leikfélagi Kópavogs frá 1988 og m.a. setið í stjórn félagsins og gegnt öllum störfum innan stjórnar. Hann hefur tekið þátt í fjölda uppfærslna hjá Leikfélagi Kópavogs sem leikari,  hannað leikmyndir og búninga, leikstýrt og skrifað fjölda leikþátta. Þá hefur hann einnig skrifað tvö barnaleikrit. „Rúa og Stúa“ í samvinnu við Skúla Rúnar Hilmarsson og „Gutta og félaga“ sem hann leikstýrði einnig árið 2013. Síðasta leikstjórnarverk Arnar var „Elskhuginn“ eftir Harold Pinter haustið 2014.  Örn hefur sótt fjölda námskeiða tengda leiklist s.s. í leikstjórn og leikritun.