Hér með er boðað til aðalfundar Leikfélags Kópavogs hinn 20. júní í Leikhúsinu. Hefst fundurinn kl. 20.

Á dagskrá eru venjulega aðalfundarstörf skv. ákvæðum félagslaga. Meðal annars verður flutt skýrsla stjórnar um leikárið sem er að líða, endurskoðaðir reikningar lagðir fram og kosin ný stjórn félagsins svo nokkuð sé nefnt. Í lokin verða síðan frjálsar umræður um hvaðeina sem fundarmönnum kann á liggja á hjarta og sem viðkemur starfsemi félagsins.