Skýrslur stjórnar | Leikfélag Kópavogs

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2018-2019
Leikárið byrjaði með látum en ákveðið var á vordögum 2018 á setja upp nýjan og spennandi farsa. Leikárið eftir áramót var heldur rólegra, en starfsemin fjölbreytt og fastir liðir á sínum stað.

Framkvæmdastjóri hússins

Það fyrirkomulag að hafa framkvæmdastjóra leikhússins hefur reynst það vel að stjórn ákvað að framlengja samningnum þriðja árið í röð. Framkvæmdastjóri sér um það sem viðkemur húsinu sjálfu og samskipti við þá aðila og hópa sem fá inni í Leikhúsinu. Að öllum líkindum er þetta fyrirkomulag komið til að vera.

Framkvæmdir innanhúss

Mikið var rætt um að fara í framkvæmdir innanhúss en minna gert, enda nýbúið að taka vel í gegn á neðri hæð hússins. Þetta virðist vera verkefnið endalausa. Draumurinn er að ráðast í framkvæmdir í leikararými á efri hæðinni. Skoðaðar voru gamlar teikningar af skipulagi rýmisins og uppi eru hugmyndir að betrumbæta aðstöðuna þar á næstunni.

Götuleikhúsið

Götuleikhúsinu býðst aðstaða í Leikhúsinu í júní og júlí. Sem fyrr var umgengni til fyrirmyndar og engin vandamál komu upp

Farsinn Tom, Dick og Harry

Í lok ágúst hófst samlestur á farsanum Tom, Dick og Harry í þýðingu og leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Það gekk vonum framar að manna í 9 manna farsa og færri komust að en vildu. Æfingar gengu vel, eins hönnun leikmyndar sem var í höndum Maríu B. Ármannsdóttir sem hafði nýlokið námskeið í sviðsmynda og búningahönnun hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga með styrk frá LK. Frumsýnt var 1. nóvember, sýnt var fyrir og eftir áramót. Sýningar urðu 12 talsins og aðsókn var með ágætum.

Stjörnuljósakvöld

Stjörnuljósakvöld var í seinna fallinu þetta árið. Yfirleitt hefur það verið fyrsta laugardag eftir afmæli félagsins sem er 5. jan. Leikmyndin í farsanum gerði það að verkum að það þurfti að seinka stjörnuljósakvöldinu. Stór sófi spilaði stóran þátt í leikmyndinni og hann var boltaður fastur við gólfið á miðju sviðinu!

Skemmtidagskrá var í kvöldvökuformi. Ýmsir aðilar stigu á stokk og heppnaðist kvöldið vel. Allir höfðu gaman að.

Leiklistarnámskeið fyrir byrjendur

í febrúar bauð Leikfélagið upp á námskeið fyrir byrjendur í leiklist fyrir fullorðna. Kennari var Hörður Sigurðarson. Alls voru 10 manns á námskeiðinu. Námskeiðið var alls 18 klst. Félagið hefur boðið upp á sambærilegt námskeið ár hvert og var almenn ánægja með námskeiðið eins og endranær. Sex af þátttakendunum tóku síðan þátt í leikþáttadagskrá nú í vor og stigu þar með sín fyrstu skref á sviði.

Leiklistarnámskeið fyrir unglinga

Eins og áður bauð leikfélagið upp á námskeið fyrir unglingana. Kennari var Gríma Kristjánsdóttir. Kennt var einu sinni í viku til að byrja með en oftar eftir því sem leið að lokum námskeiðs. Uppi voru hugmyndir um samstarf við Grunnskóla Kópavogsbæjar að bjóða þessi námskeið sem hluta af leiklistarvali í eldri bekkjum grunskólannia. Sú umræða fór heldur seint af stað og ekki náðist í tíma að skipuleggja það til hlýtar.

Að þessu sinni var námskeiðið haldið eftir áramót. Ástæðan var Farsinn sem var settur upp í haust og erfitt að vera með námskeið á sama tíma, enda tók leikmynd farsans mikið pláss á sviðinu. Námskeiðið byrjaði í febrúar og það varð ofan á að þetta var samstarfsverkefni Leikfélagsins og Kópavogsbæjar. Ákveðið var að bjóða námskeiðið frítt og tengja námskeiðið við Barnamenningarhátíð. Ljúka átti námskeiðinu í Salnum í Kópavogi þegar Barnamenning stæði sem hæst. Skemmst er frá því að segja að mjög dræm þátttaka var á námskeiðið, þrátt fyrir samstarfið og að Kópavogsbær auk okkar auglýsti námskeiðið á sínum síðum og dreifði auglýsingu frá LK inn í skólana. Sex krakkar byrjuðu en aðeins 3 luku námskeiðinu. Ekkert varð úr að að sýna í Salnum eins og lagt var upp með í fyrstu, enda var sýningin alltaf að taka breytingum vegna smæðar hópsins. Það endaði þó með sýningu í Leikfélagi Kópavogs í apríl eftir 10 vikna námskeið.

Undirrituð spyr sig hvers vegna þátttaka á námskeið hjá okkur fer sífellt minnkandi með ári hverju. Er það samkeppninni um að kenna? Nú er til dæmis boðið upp á leiklistaráfanga í flestum skólum Kópavogs. Auglýsum við ekki nægilega vel? Við í stjórn félagsins þurfum að gera breytingar með fyrirkomulagið því það er nokkuð ljós að við getum ekki startað unglinganámskeiði á næsta leikári án verulegra breytinga.

Álfhólsskóli

Álfhólsskóli í Kópavogi fékk afnot af Leikhúsinu í 2 vikur í febrúar. Æfði og sýndi söngleikinn Grease.

Menntakólinn í Kópavogi

Eins og endranær fékk Leikfélag Menntaskólans í Kópavogi, Sauðkindin, afnot af húsinu í 3 vikur eins og kveðið er á um í samningi Leikfélags Kópavogs við Kópavogsbæ. Árið í fyrra var reyndar undantekning þar sem MK afþakkaði húsið með fyrirvara, sem kom LK mjög vel vegna velgengi sýningarinnar Fróði og allir hinir grislingarnir.

Fráteknar voru 3 vikur í vor frá 1. mars til 21. mars fyrir MK. Í stuttu máli fór það svo að Leikfélag Menntaskólans sá sér ekki fært að nota húsið og lét vita af því þegar vika var liðin af umræddum tíma. Teljum við í stjórn Leikfélagsins þetta afar hvimleitt þar sem við annars vegar skipuleggjum starfsemi okkar að hluta til í kringum veru MK í húsinu, en hins vegar hefðum við getað leigt út húsnæðið á þessum tíma ef við hefðum haft vitjneskju um það fyrr, að ekkert yrði af því að MK kæmi í húsið. Húsið var því ekki í notkun í 3 vikur samfelltá þessu leikári.

Kvikmyndaskólinn

Kvikmyndaskólinn leigði Leikhúsið fyrir sín verkefni á vorönn. Hann hafði húsið til afnota í 2 vikur í maí að þessu sinni. Allt gekk vel og fór vel fram.

Leikþáttadagskrá

Eftir að veru Kvikmyndaskólans í húsinu lauk byrjuðu æfingar á fullu á nýrri leikþáttadagskrá sem við kusum að nefna Leikróf. Um var að ræða sex leikþætti, en fljótt var ljóst að tveir þættir yrðu ekki með vegna veiknda leikara. Æft var stíft í þrjár vikur og frumsýnt var 1. júní. Alls tóku níu leikarar þátt í dagskránni og þar af sex nýir leikarar eins og fyrr segir. Þetta tókst með ágætum og sýnt var tvisvar við nokkuð góða aðsókn.

Eins og sjá má af ofangreindu var leikárið fjölbreytt að venju en líka nokkuð hnökrótt. Það gekk illa að fá krakka til að stunda leiklist hjá okkur, húsið var ekki eins vel nýtt og það hefði geta verið, eins var aðsókn á sýningar heldur minni en við áttum von á. Í það minnsta virtist vera erfiðara en áður að ná til fólks og fá það á sýningar Spurningin er ; hvað veldur? Það er alltaf gott að setjast niður og horfa yfir farinn veg, sjá hvað hefur tekist vel og hvað mætti betur fara. Við erum jú alltaf að læra. Það að horfa til baka eflir mann í því að langa að gera betur og þannig að sjá tækifærin og framtíðina í björtu ljósi með nýjum og skemmtilegum hugmyndum. Nú þegar er næsta leikár byrjað að mótast og við getum ekki beðið eftir að takast á við það! Spennandi timar eru framundan!

Lifi leiklistin!

Fyrir hönd stjórnar,

Anna Margrét Pálsdóttir

Formaður LK

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2017- 2018
Enn einu viðburðarríku leikári hjá Leikfélaginu er lokið. Sem fyrr var starfsemin fjölbreytt og skemmtileg.

Leiklistarskóli Bandalagsins

Að þessu sinni fóru tveir einstaklingar frá Leikfélagi Kópavogs til að nema leiklistina í Leiklistarskóla BÍL í júní 2017. Að venju styrkti leikfélagið félagsmenn að hluta til að bæta menntun sína á sviði leiklistar og mun svo verða áfram. Stjórn telur það afar mikilvægt að styrkja virka félagsmenn með þessu móti og efla þannig innra starf leikfélagsins

Götuleikhúsið

Götuleikhúsið kom inn að venju í byrjun júní. Sem fyrr var umgengni til fyrirmyndar og engin vandamál  komu upp.

Óperudagar

Í júní voru óperudagar haldnir í Kópavogi og leigði leikfélagið út húsið til afnota af því tilefni.

Snertu mig ekki – snertu mig!

Snertu mig ekki  – snertu mig! er framhald af sýningunni Snertu mig! sem var sýnd á síðasta leikári. Vegna fjölda áskorana frá áhorfendum sem vildu vita meira um afdrif persónanna settist höfundur niður og skrifaði framhald.  Sýningunni var vel tekið og fékk mjög góða dóma. Höfundur er Örn Alexandersson og leikstjóri var Sigrún Tryggvadóttir.  Frumsýnt var í september. Alls var sýnt sjö sinnum og aðsókn var góð.

Leiklistarnámskeið fyrir krakka

Eins og áður bauð félagið upp á sín árlegu námskeið fyrir krakka undir  styrkri leiðsögn Guðmundar L. Þorvaldssonar og Grímu Kristjánsdóttur. Þátttaka var dræm og þurfti að sameina yngri og eldri hóp í einn.  Spurning um ástæður þessa, en nú er í meira mæli boðið upp á leiklistarnámskeið í grunnskólum bæjarins. Það má leiða að því líkum að það sé ein af hugsanlegum ástæðum þess að þátttakan var með minna móti. Alls tóku 7 krakkar þátt í námskeiðinu sem spannaði 10 vikur að vanda og endaði með  sýningunni Draumaliðið sem var sýnd einu sinni fyrir fullu húsi þann 28. nóvember.

Almenn ánægja var með námskeiðið og má geta þess að 3 ungmenni sem tóku þátt í unglingastarfinu tóku einnig þátt í uppfærslu leikfélagsins á Fróða og öllum hinum grislingunum sem frumsýnt var í mars. Einn af krökkunum úr unglingastarfinu fer út til Frakklands á leiklistarmót ungmenna 13-15 ára í Toulouse í Frakklandi í sumar, þar sem markmiðið er að stunda leiklist og kynnast hópi barna hvaðanæva að úr heiminum með sama áhugamál. Mótið er styrkt af Evrópusambandinu.

Leiklistarnámskeið fyrir byrjendur

Í október bauð félagið upp á byrjendanámskeið í leiklist fyrir fullorðna. Kennari var Hörður Sigurðarson. Átta manns skráðu sig til leiks. Námskeiðið var alls 18 klst.

Almenn ánægja var með námskeiðið en félagið hefur boðið upp á sambærileg námskeið ár hvert.

Lista – og menningarráð

Þann 31.október var skrifað undir nýjan samning við Lista- og menningarráð sem gildir til 1. Nóvember 2020. Áhersla var lögð á að auka samstarf Leikfélagsins við ráðið og einnig að efla samstarfið við aðrar menningarstofnanir í Kópavogi. Nú þegar er meira samstarf við ráðið t.d buðu Leikfélagið og Kópavogsbær fjölskyldum á tvær sýningar af Fróða og alla hina grislingana í tilefni Barnamenningarhátíðar, kynning á Fróða var á Bókasafni Kópavogs sem er eitt af menningarhúsunum og fyrirhugað er að Leikfélagið taki þátt í fjölskyldudegi í Salnum í haust.

Við erum spennt fyrir frekara samstarfi á komandi leikári.

Framkvæmdastjóri

Stjórn ákvað að framlengja samning við framkvæmdastjóra hússins, en Hörður Sigurðarson var ráðin í það starf á síðasta leikári í fyrsta sinn. Hann sér um það sem viðkemur húsinu sjálfu og samskipti við þá aðila og hópa sem fá inni í Leikhúsinu. Þetta fyrirkomulag hefur gefist einkar vel og minnkar álag á stjórn félagsins.

Framkvæmdir innanhúss

Upplyfting andyris var kláruð. Einnig var farið í það að taka áhorfendasvæði í gegn. Stæði hækkuð, tröppur lagaðar og bætt við 12 sætum í sal. Nú er pláss fyrir 72 áhorfendur. Í febrúar tók stjórn sig til og lagaði aðstöðu leikara baksviðs og fyrirhugað er að gera breytingar á sameiginlegu rými sem er á annarri hæð hússins.

Leikfélag MK

Forsvarsmenn Leikfélags Menntaskólans í Kópavogi létu vita snemma á leikárinu að  félagið hugðist ekki nýta sér ekki aðstöðu LK að þessu sinni eins og undanfarin ár. Það verður að segjast eins og er að það kom félaginu einkar vel að slíta ekki í sundur sýningartímann í þær 3 vikur sem MK hefði annars komið inn í húsið. Það hefur sennilega átt nokkurn þátt í því að sýningar á Fróða og öllum hinum grislingunum gekk eins vel og raun ber vitni.

Kvikmyndaskólinn

Kvikmyndarskólinn kom inn í desember eins og fyrri ár, engin breyting þar á.

Stjörnuljósakvöld

Hið árlega stjörnuljósakvöld í tilefni afmælis leikfélagsins var á sínum stað í upphafi ársins. Stjórn leikfélagsins ákvað að þessu sinni að bjóða vinum okkar úr Leikfélagi Hafnarfjarðar til að taka þátt í dagskránni með okkur. Eins og flestum er ljóst eru vinir okkar húsnæðislausir og hafa því ekki aðstöðu til æfinga hvað þá sýninga. Sýndir voru 3 þrír leikþættir, allir í höndum LH, farið var með gamanmál og Leikhúsbandið steig á stokk að venju. Kvöldið heppnaðist með endemum vel, en óneitanlega skyggði sviplegt fráfall Sigurveigar Mjallar á gleðina, en hún var virk í leiklistarstarfi LH og hafði einnig leikið mikið með LK.  Blessuð sé minning hennar.

Fróði og allir hinir grislingarnir

Samlestur á Fróða og öllum hinum grislingunum hófst í desember og æfingar hófust strax eftir áramótin. Þrjátíu ár eru síðan leikfélagið setti upp þetta frábæra barnaleikrit eftir Ole Lund Kirkegaard og ákvað stjórn að dusta rykið af handritinu og endurtaka leikinn.

Tólf leikarar tóku þátt í sýningunni, þar af eins og áður segir, þrír krakkar úr unglingadeild félagsins. Leikstjóri var Örn Alexandersson.

Frumsýnt var 3. mars. Sýningin naut gífurlegra vinsælda þá og er hægt að segja með sanni að hún hafi einnig slegið í gegn nú. Uppselt var á nær allar 16 sýningarnar, þar af voru 3 einkasýningar fyrir grunnskóla í Kópavogi og 2 sýningar í tilefni af Barnamenningarhátíðinni.  Áhorfendur voru himinlifandi og tóku sýningunni opnum örmum, bæði ungir sem eldri (sem höfðu jafnvel séð sýninguna á sínum tíma).  Alls sáu yfir þúsund manns sýninguna.

Erfitt var að segja skilið við Fróða og alla hina grislingana í ljósi frábærrar aðsóknar og sárt að hætta fyrir fullu húsi. En önnur verkefni bíða og ekki hægt að ætlast til þess að svo stór leikarahópur geti haldið sýningum áfram í haust. Það kom einnig á daginn.  Því var leikmynd Fróða tekin niður og sýningin kvödd með dassi af trega.

Svarti kassinn

Leikfélagið sótti um að fara fyrir hönd Íslands á leiklistarhátíðina NEATA 2018 í Litháen með sýninguna Svarta kassann sem verður haldin um mánaðarmót júlí /ágúst. Skemmst er frá því að segja að sýningin var valin og standa nú yfir æfingar og skipulagning ferðar hópsins út á erlenda grund. Sýningin fékk á sínum tíma frábæra dóma, en hún er samsköpunarverk handritshöfundar, leikstjóra og leikhópsins. Höfundur er Hrefna Friðriksdóttir, leikstjóri er Ágústa Skúladóttir og leikhópinn skipa 10 manns. Stjórn er ekki í nokkrum vafa um að Svarti kassinn eigi eftir að verða verðugur fulltrúi Leikfélags Kópavogs og Íslands í Litháen seinna á árinu.

Hugsanlegt samstarf Leikfélags Kópavogs við Grunnskóla Kópavogs

Á vordögum byrjuðu viðræður við skólastjórnendur tveggja grunnskóla Kópavogs og deildarstjóra grunnskóla á sviði menntamála hjá Kópavogsbæ.  Hugsanlegt samstarf er í farvatninu, að bjóða leiklistarnámskeið sem val í unglingadeildum grunnskóla Kópavogs í samstarfi við Leikfélagið. Við hlökkum til að sjá hvert það leiðir okkur og finnst spennandi að auka ennfrekar á samstarf félagsins við Kópavogsbæ.

Fyrir hönd Leikfélags Kópavogs

Anna Margrét Pálsdóttir

Formaður LK

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2016-2017
Almennt

Leikfélagið fagnaði 60 ára afmæli á þessu leikári og því var starfsemin óvenju viðamikil að þessu sinni. Frumsýndar voru meðal annars þrjár frumsamdar leiksýningar. Flestir virðast vera sammála um að vel hafi tekist til.

Framkvæmdastjóri

Stjórn leikfélagsins samþykkti í upphafi leikárs þá nýjung að ráða Hörð Sigurðarson framkvæmdastjóra hússins. Hann hefur meðal annars séð um það sem viðkemur húsinu sjálfu og er tengill við hópa sem fá inni. Þetta hefur reynst einkar vel og hefur stjórn hug á að hafa sama fyrirkomulag á næsta leikári.

Leiklistarskóli Bandalagsins

Að þessu sinni sóttu þrír nemendur skólann frá Leikfélaginu í júní 2016. Eins og áður styrkti félagið nemendur með smá upphæð. Það er stefna félagsins að auðvelda félagsmönnum að sækja námskeiðin með því að styrkja þá að hluta og mun svo verða áfram.

Götuleikhúsið

Eins og áður var hópur frá Götuleikhúsinu í samvinnu við vinnuskóla Kópavogs í húsinu í júní og júlí. Engir hnökrar voru á veru þeirra í húsinu og umgengni til fyrirmyndar.

Snertu mig – ekki!

Fyrsta frumsýning leikársins var um miðjan september á verkinu Snertu mig – ekki! eftir Örn Alexandersson í leikstjórn Sigrúnar Tryggvadóttur. Alls voru átta sýningar á verkinu og aðsókn var góð.

Leitin að sumrinu

Önnur frumsýning leikársins fylgdi fast í kjölfarið, en barnaleikritið Leitin að sumrinu var frumsýnd í október. Þrír gamalreyndir félagar úr leikfélaginu þeir Guðmundur L. Þorvaldsson, Ástþór Ágústsson og Magnús Guðmundsson sömdu verkið og léku í því. Markhópurinn var 4-10 ára krakkar. Alls var sýnt 11 sinnum, 9 sýningar í Leikhúsinu og 2 sýningar voru keyptar af fyrirtæki og sýndar þar. Ekki sér alveg fyrir endann á þessu ævintýri og er hugur í leikhópnum að fara á flakk með sýninguna á næsta leikári.

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Að venju bauð leikfélagið upp á námskeið fyrir börn og unglinga í tveimur aldursflokkum. Námskeiðin voru frá september til loka nóvember eins og venja hefur skapast. Kennarar voru þau Guðmundur L. Þorvaldsson og Gríma Kristjánsdóttir. Yngri hópurinn voru 11-12 ára krakkar. Kennt var einu sinni í viku í 10 vikur, klukkutíma í senn. Eldri hópurinn voru 13-16 ára krakkar. Þau voru einnig einu sinni í viku í 10 vikur, en tvo tíma í senn. Þátttakan var þokkaleg en alls sóttu 15 krakkar námskeiðin sem enduðu með sameiginlegri uppfærslu á verkinu Þrautirnar þrjár, eftir kennara námskeiðsins. Sýnt var einu sinni fyrir vel fullu húsi og gengu sýningargestir ánægðir út, stoltir af sínum krökkum.

Leiklistarnámskeið fyrir byrjendur

Í október og nóvember bauð félagið upp á byrjendanámskeið í leiklist fyrir fullorðna. Kennari var Hörður Sigurðarsson. Tíu skráðu sig til leiks. Fimm af þeim tóku þátt í leikþáttadagskrá seinna á leikárinu og einn af þeim tók þátt í afmælissýningu leikfélagsins eftir áramót. Námskeiðið var alls 18 klukkustundir.

Stjörnuljósakvöld – 60 ára afmælishátíð Leikfélagsins

Hið árlega stjörnuljósakvöld var með örlitlu breyttu sniði en venjulega vegna stórafmælis Leikfélagsins, en það varð 60 ára þann 5. Janúar síðastliðinn. Stjórn lagði áherslu á upplyftingu andyris, en það var parketlagt, málað og saga félagsins í formi plakata o.fl. sett meðal annars upp á vegg. Afmælishátíðin sjálf fór fram þann 9. jan. Boðið var upp á veglegar veitingar og skemmtileg yfirferð um sögu félagsins í máli og myndum var í höndum Harðar Sigurðarsonar og Bjarna Guðmarssonar. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Kvöldið heppnaðist með miklum ágætum og skemmti fólk sér fram á nótt að venju.

Nýr og endurbættur vefur Leikfélagsins

Nýr vefur félagsins var tekin í notkun í kringum 60 ára afmælið. Töluverðar útlitsbreytingar voru gerðar á vefnum og markmiðið var að hleypa nýrri og betri tækni að og gera vefinn enn aðgengilegri fyrir notendur. Það er nýjung að hægt er að panta miða á leiksýningar í gegnum vef félagsins. Þetta hefur reynst einkar vel og önnur áhugaleikfélög hafa hug á að gera slíkt hið sama. Hörður Sigurðarson á þakkir skyldar fyrir frábæran vef.

Leikþáttadagsskrá

Leikþáttadagsskrá var frumsýnd í lok janúar. Eins og áður segir tóku fimm nýir félagar þátt í dagskránni ásamt eldri félögum og einum leikara úr unglingadeildinni. Sýndir voru þrír þættir; Listin að lifa eftir Siggu Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Arnfinns Daníelssonar og tveir erlendir þættir. Annars vegar Blint stefnumót og hins vegar Sjóðandi fólk í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Alls voru þrjár sýningar og var aðsókn nokkuð góð.

Leikfélag MK

Leikfélag Menntaskólans í Kópavogi kom inn í húsið að venju í kringum páska og voru í húsinu í 3 vikur. Eins og síðasta ár gekk það vel fyrir sig, ólíkt árunum á undan. Við viljum þakka það breyttu fyrirkomulagi. Nú sem í fyrra var Sigrún Óskarsdóttir tengiliður skólans við leikfélagið og gekk allt snurðulaust fyrir sig. Umgengni var til fyrirmyndar og góð samskipti voru á milli félagsins og MK meðan á dvöl þeirra stóð. Þau settu upp sýninguna Hrói Höttur við góða aðsókn.

Leikfélag Kópavogs

Kvikmyndaskólinn

Kvikmyndaskólinn kom inn í húsið í desember og aftur í maí. Lengi var tvísýnt með að hann fengi inni í vor vegna vangoldinna skulda fyrir leigu í desember, en sú skuld var greidd rétt áður en skólinn fékk inni. Skólinn setti upp frumsamið verk undir stjórn Ágústu Skúladóttur.

Svarti kassinn

Æfingar á Svarta kassanum, afmælissýningu félagsins, hófust í nóvember, en hugmyndin að sýningunni var þá þegar farin að mótast. Við fengum Ágústu Skúladóttur til að leikstýra, en hún hefur reynst okkur mjög vel og hefur komið að fjölmörgum uppfærslum hjá leikfélaginu. Hrefna Friðriksdóttir samdi handrit. Þetta var samsköpunarverkefni handritshöfundar, leikstjóra, leikhópsins og annarra sem að sýningunni komu. Tekið var hlé á æfingum sem hófust síðan aftur eftir að MK var farið úr húsi í lok mars. Frumsýnt var þann 28. apríl og alls var sýnt ellefu sinnum við góða aðsókn. Sýningin fékk frábæra dóma og sýningargestir virtust flestir mjög ánægðir. Leikfélagið hefur ákveðið að sækja um fyrir Svarta kassann á leiklistarhátíðina NEATA 2018. Búið er að undirstinga leikhópinn með það. Allir er tilbúnir að gefa kost á sér í þetta verkefni. Við höfum því hug á að setja sýninguna aftur upp næsta vor ef þetta gengur eftir. Þannig að við höfum vonandi ekki sagt skilið við Svarta kassann.

Leikhópurinn Ást og karokí

Leikhópurinn Ást og karokí komu inn í húsið þann 29. maí og sýndu: Sýningu um glímu og Slazenger. Alls voru sýningar 2 og aðsókn var góð.

Tiltektardagur og grillhátíð í lok leikárs

Við ætlum að halda í hefðina og hittast í leikhúsinu í lok júní. Ganga vel frá eftir annasamt leikár og gera tilbúið fyrir það næsta. Hugmyndin er að reyna að losa okkur við búninga og leikmuni sem ekki er lengur þörf fyrir og hafa „bílskúrssölu“ á bílastæðinu fyrir framan Leikhúsið. Það er ekki komin nákvæm dagsetning. Fyrirhuguð verður grillveisla um kvöldið til að loka þessu eftirminnilega leikári með stæl.

Fyrir hönd stjórnar,

Anna Margrét Pálsdóttir, formaður LK

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2015-2016
Almennt

Eftir eitt viðamesta leikár frá upphafi á síðasta leikári var öllu rólegra yfir starfseminni nú í ár. Fjölmörg verkefni hafa þó verið í gangi og mun afraksturinn m.a. koma í ljós í haust.

Leiklistarskólinn nemendur

Í júní 2015 sóttu 3 félagsmenn námskeið í Leiklistarskóla BÍL. Það hefur verið stefna félagsins að reyna að styrkja félagsmenn með smá framlagi til að sækja sér menntun í skólanum og mun svo verða áfram.

Götuleikhúsið

Götuleikhús Kópavogs fékk inni í húsinu samkvæmt venju í júní og júlí í fyrra. Gekk þar allt með prýði eins og ávallt áður. Hópurinn er nú kominn inn að nýju.

Á rúmsjó

Fyrsta leikverk leikársins fór í vinnslu þegar síðastliðið sumar. Örn Alexandersson stýrði fimm leikurum í absúrdverkinu Á rúmsjó eftir Slavomir Mroszek. Frumsýnt var í byrjun október og var sýnt 6 sinnum við þokkalega aðsókn.

Barna- og unglinganámskeið

Hefðbundin starfsemi unglingadeildar fór fram september til nóvember. eins og venjulega. Eins og árið áður voru tveir hópar að störfum, 11-12 ára og 13-16 ára. Leiðbeinandi var Guðmundur L. Þorvaldsson og honum til halds og trausts var Guðlaug Björk Eiríksdóttir. Ástþór Ágústsson kom einnig við sögu í byrjun námskeiða þar sem Guðmundur var að leikstýra úti á landi. Þáttaka var með ágætum og samtals voru 20 þátttakendur á námskeiðunum tveimur.

Yngri hópur mætti vikulega í 1 klst. í senn, 10 sinnum alls en sá eldri jafnoft en í tvær klst. í senn.

Að loknum námskeiðum settu hóparnir upp hvor sína sýninguna á tveimur vikum og var sú nýbreytni viðhöfð að sýningarnar voru sýndar saman. Sýning yngri hóps hét Sumarbúðirnar Landnemaborgir og fjallaði um hóp barna sem koma í sumarbúðir þar sem afar strangar reglur eru við lýði og gera uppreisn. Sýning eldri hóps hét Hvíldu í friði og fjallaði um unglinga sem brjótast inn i hús sem talið er reimt.

Stjörnuljósakvöld

Stjörnuljósakvöld, árleg innanfélagsskemmtun LK var haldin 9. janúar. Þar voru sýndir 3 leikþættir auk ljóðalesturs og söngatriðis. Þættirnir voru Að vera eða ekki vera eftir Árna Friðriksson, Systur sveina eftir Guðmund L. Þorvaldsson og Töfrabragðið eftir Catherine Butterfield. Einnig var fluttur einskonar ljóðaleikþáttur undir stjórn Arnar Alexanderssonar. Tveir þriðju hlutar Leikhúsbandsins ásamt gestaleikara fluttu svo nokkur lög. Leikfélagar skemmtu sér svo saman inn í nóttina skvt. venju.

Kvikmyndaskólinn

Kvikmyndaskólinn kom ekki inn í desember eins og svo oft en fékk inni í húsinu í maí. Eins og jafnan var samstarfið gott og umgengni og samskipti eins og best verður á kosið. Hópurinn setti upp tvö frumsamin verk undir stjórn góðkunningja leikfélagsins, Rúnars Guðbrandssonar og tókst vel til.

Leikfélag MK

Ekki var laust við að kvíði sækti að stjórn þegar kom að árlegri innkomu MK í húsið, sérstaklega eftir mjög erfiðan tíma árið áður. Þess mun ánægjulegra var hve ótrúlega vel tókst til að þessu sinni. Þegar síðasta haust mátti greina mjög breyttan tón í forsvarsmönnum leikfélags og skólans sjálfs. Fólk var tilbúið að horfast í augu við að ekki hafði allt verið sem skyldi í umgengni og samskiptum og sýndi frá upphafi greinilegan vilja til að bæta úr. Tengiliður skólans við okkur, Sigrún Óskarsdóttir á mikinn heiður skilið fyrir að hafa verið með í ráðum áður en hópurinn kom inn, sýnt honum mikið og gott aðhald og verið í stöðugu sambandi við formann LK allan tímann til að tryggja að hlutirnir gengju upp. Forsvarsmenn leikfélags MK sýndu líka mikla jákvæðni, vilja og dugnað og eiga hrós skilið fyrir sinn hlut. Smáhnökrar komu upp en það voru í raun smámunir einir miðað við fyrri ár og ekki ástæða til að tíunda frekar hér.

Óperudagar

Óperudagar voru haldnir í Kópavogi í byrjun júní og leigðum við út húsið til að æfa og sýna óperusýningar Selshaminn og Poppea Remixed. Svo ánægðir voru söngvararnir með húsið að þeir fengu að framlengja veru sína í því til að æfa og sýna stuttóperuna Björninn sem þau hyggja á utanlandsferð með.

Leiklistarnámskeið

Hörður Sigurðarson hélt leiklistarnámskeið fyrir byrjendur í febrúar og mars. Sex þátttakendur voru skráðir til leiks, fjórir mættu í upphafi og einn bættist svo við. Námskeiðið var samtals 18 klst. Tveir úr hópnum eru nú að æfa upp leikþátt undir stjórn Harðar.

Leikdagskrá

Stefnt var uppsetningu á leikdagskrá í maí en tekin var sú ákvörðun að fresta henni til hausts. Þegar eru nokkrir þættir í æfingu og einhverjir munu eflaust bætast við.

Leitin að sumrinu

Eitt af þeim verkefnum sem verið hafa í gangi í vetur en frumsýnd verða í haust er nýtt barnaleikrit sem hlotið hefur heitið Leitin að sumrinu. Þar eru á ferð 3 gamlir leikfélagsmenn, þeir Guðmundur L. Þorvaldsson, Magnús Guðmundsson og Ástþór Ágústsson. Þeir félagar hafa unnið verkið í hópvinnu og markhópurinn er aldurinn 4-10 ára. Verkið verður nánar kynnt í haust.

Vinnudagur og leikárslokagrill

Sú hefð hefur skapast að ljúka leikárinu í júní með vinnudegi í leikhúsinu og grillveislu um kvöldið. Stefnt er að slíkum vinnudegi í sumar en ekki hefur verið ákveðið hvenær hann verður.

Afmælisár

Leikfélagið verður 60 ára á næsta leikári. Ýmislegt er á prjónunum vegna þess og ýmis verkefni þegar verið talin upp hér á undan. Ýmislegt fleira er á prjónum sem verður upplýst þegar nær dregur hausti.

Fyrir hönd stjórnar LK,

Hörður Sigurðarson

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2015-2016
Almennt

Eftir eitt viðamesta leikár frá upphafi á síðasta leikári var öllu rólegra yfir starfseminni nú í ár. Fjölmörg verkefni hafa þó verið í gangi og mun afraksturinn m.a. koma í ljós í haust.

Leiklistarskólinn nemendur

Í júní 2015 sóttu 3 félagsmenn námskeið í Leiklistarskóla BÍL. Það hefur verið stefna félagsins að reyna að styrkja félagsmenn með smá framlagi til að sækja sér menntun í skólanum og mun svo verða áfram.

Götuleikhúsið

Götuleikhús Kópavogs fékk inni í húsinu samkvæmt venju í júní og júlí í fyrra. Gekk þar allt með prýði eins og ávallt áður. Hópurinn er nú kominn inn að nýju.

Á rúmsjó

Fyrsta leikverk leikársins fór í vinnslu þegar síðastliðið sumar. Örn Alexandersson stýrði fimm leikurum í absúrdverkinu Á rúmsjó eftir Slavomir Mroszek. Frumsýnt var í byrjun október og var sýnt 6 sinnum við þokkalega aðsókn.

Barna- og unglinganámskeið

Hefðbundin starfsemi unglingadeildar fór fram september til nóvember. eins og venjulega. Eins og árið áður voru tveir hópar að störfum, 11-12 ára og 13-16 ára. Leiðbeinandi var Guðmundur L. Þorvaldsson og honum til halds og trausts var Guðlaug Björk Eiríksdóttir. Ástþór Ágústsson kom einnig við sögu í byrjun námskeiða þar sem Guðmundur var að leikstýra úti á landi. Þáttaka var með ágætum og samtals voru 20 þátttakendur á námskeiðunum tveimur.

Yngri hópur mætti vikulega í 1 klst. í senn, 10 sinnum alls en sá eldri jafnoft en í tvær klst. í senn.

Að loknum námskeiðum settu hóparnir upp hvor sína sýninguna á tveimur vikum og var sú nýbreytni viðhöfð að sýningarnar voru sýndar saman. Sýning yngri hóps hét Sumarbúðirnar Landnemaborgir og fjallaði um hóp barna sem koma í sumarbúðir þar sem afar strangar reglur eru við lýði og gera uppreisn. Sýning eldri hóps hét Hvíldu í friði og fjallaði um unglinga sem brjótast inn i hús sem talið er reimt.

Stjörnuljósakvöld

Stjörnuljósakvöld, árleg innanfélagsskemmtun LK var haldin 9. janúar. Þar voru sýndir 3 leikþættir auk ljóðalesturs og söngatriðis. Þættirnir voru Að vera eða ekki vera eftir Árna Friðriksson, Systur sveina eftir Guðmund L. Þorvaldsson og Töfrabragðið eftir Catherine Butterfield. Einnig var fluttur einskonar ljóðaleikþáttur undir stjórn Arnar Alexanderssonar. Tveir þriðju hlutar Leikhúsbandsins ásamt gestaleikara fluttu svo nokkur lög. Leikfélagar skemmtu sér svo saman inn í nóttina skvt. venju.

Kvikmyndaskólinn

Kvikmyndaskólinn kom ekki inn í desember eins og svo oft en fékk inni í húsinu í maí. Eins og jafnan var samstarfið gott og umgengni og samskipti eins og best verður á kosið. Hópurinn setti upp tvö frumsamin verk undir stjórn góðkunningja leikfélagsins, Rúnars Guðbrandssonar og tókst vel til.

Leikfélag MK

Ekki var laust við að kvíði sækti að stjórn þegar kom að árlegri innkomu MK í húsið, sérstaklega eftir mjög erfiðan tíma árið áður. Þess mun ánægjulegra var hve ótrúlega vel tókst til að þessu sinni. Þegar síðasta haust mátti greina mjög breyttan tón í forsvarsmönnum leikfélags og skólans sjálfs. Fólk var tilbúið að horfast í augu við að ekki hafði allt verið sem skyldi í umgengni og samskiptum og sýndi frá upphafi greinilegan vilja til að bæta úr. Tengiliður skólans við okkur, Sigrún Óskarsdóttir á mikinn heiður skilið fyrir að hafa verið með í ráðum áður en hópurinn kom inn, sýnt honum mikið og gott aðhald og verið í stöðugu sambandi við formann LK allan tímann til að tryggja að hlutirnir gengju upp. Forsvarsmenn leikfélags MK sýndu líka mikla jákvæðni, vilja og dugnað og eiga hrós skilið fyrir sinn hlut. Smáhnökrar komu upp en það voru í raun smámunir einir miðað við fyrri ár og ekki ástæða til að tíunda frekar hér.

Óperudagar

Óperudagar voru haldnir í Kópavogi í byrjun júní og leigðum við út húsið til að æfa og sýna óperusýningar Selshaminn og Poppea Remixed. Svo ánægðir voru söngvararnir með húsið að þeir fengu að framlengja veru sína í því til að æfa og sýna stuttóperuna Björninn sem þau hyggja á utanlandsferð með.

Leiklistarnámskeið

Hörður Sigurðarson hélt leiklistarnámskeið fyrir byrjendur í febrúar og mars. Sex þátttakendur voru skráðir til leiks, fjórir mættu í upphafi og einn bættist svo við. Námskeiðið var samtals 18 klst. Tveir úr hópnum eru nú að æfa upp leikþátt undir stjórn Harðar.

Leikdagskrá

Stefnt var uppsetningu á leikdagskrá í maí en tekin var sú ákvörðun að fresta henni til hausts. Þegar eru nokkrir þættir í æfingu og einhverjir munu eflaust bætast við.

Leitin að sumrinu

Eitt af þeim verkefnum sem verið hafa í gangi í vetur en frumsýnd verða í haust er nýtt barnaleikrit sem hlotið hefur heitið Leitin að sumrinu. Þar eru á ferð 3 gamlir leikfélagsmenn, þeir Guðmundur L. Þorvaldsson, Magnús Guðmundsson og Ástþór Ágústsson. Þeir félagar hafa unnið verkið í hópvinnu og markhópurinn er aldurinn 4-10 ára. Verkið verður nánar kynnt í haust.

Vinnudagur og leikárslokagrill

Sú hefð hefur skapast að ljúka leikárinu í júní með vinnudegi í leikhúsinu og grillveislu um kvöldið. Stefnt er að slíkum vinnudegi í sumar en ekki hefur verið ákveðið hvenær hann verður.

Afmælisár

Leikfélagið verður 60 ára á næsta leikári. Ýmislegt er á prjónunum vegna þess og ýmis verkefni þegar verið talin upp hér á undan. Ýmislegt fleira er á prjónum sem verður upplýst þegar nær dregur hausti.

Fyrir hönd stjórnar LK,

Hörður Sigurðarson

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2014-2015
Leiklistarskólinn nemendur

Í júní 2014 sóttu 8 félagsmenn námskeið í Leiklistarskóla BÍL. Þar sem aðalfundur er haldinn seinna í ár en venjulega er einnig hægt að upplýsa að í ár sóttu 3 félagsmenn námskeið í skólanum. Það hefur verið stefna félagsins að reyna að styrkja félagsmenn með smá framlagi til að sækja sér menntun í skólanum og mun svo verða áfram.

Götuleikhúsið

Götuleikhús Kópavogs fékk inni í húsinu samkvæmt venju í júní og júlí í fyrra. Gekk þar allt með prýði eins og ávallt áður. Hópurinn er svo kominn inn að nýju og skemmtilegt frá því að segja að umsjónarmenn eru báðir fyrrverandi meðlimir í unglingadeild leikfélagsins.

Elskhuginn

Fyrsta leikverk leikársins fór í vinnslu þegar síðastliðið sumar. Þar var á ferð ekkert minna en Elskhuginn eftir Nóbelskáldið Harold Pinter. Örn Alexandersson stýrði Arnfinni og Önnu Margréti í þessu margslungna verki. Frumsýnt var í byrjun október og var sýnt 6 sinnum við ágæta aðsókn og góðar undirtektir. Gagnrýnandi sagði m.a. að hér væri á ferðinni “… prýðileg sýning sem áhugafólk um leiklist og leikhús ætti ekki að missa af.”

Stuttverkahátíð NEATA

Óvænt barst félaginu beiðni um að halda Stuttverkahátíð NEATA laugardaginn 4. október. Fyrirvarinn var aðeins nokkrir dagar en samhentur hópur þeirra Skúla, Klæmint og Harðar skipulagði og sá um sviðssetningu 15 leikþátta, þriggja frá Færeyjum og 12 frá Íslandi. Trúðurinn Sessa, góð vinkona Ernu Bjarkar sá um kynningar og uppistand á milli sýninga við mikinn fögnuð gesta. Fékk félagið almennt mikið hrós fyrir snurðulausa og fagmannlega framkvæmd hátíðarinnar.

Barna- og unglinganámskeið

Hefðbundin starfsemi unglingadeildar fór fram september til nóvember. Eins og árið áður voru tveir hópar að störfum, 11-12 ára og 13-16 ára. Leiðbeinandi var Guðmundur L. Þorvaldsson og honum til halds og trausts var Helga Björk Pálsdóttir.

Yngri hópur mætti vikulega í 1 klst. í senn, 10 sinnum alls. Í lokin var foreldrum og aðstandendum boðið að sjá afrakstur námskeiðsins sem var hið skemmtilega frumsamda leikverk Hótel Paradís.

Eldri hópur hittist einnig vikulega en í 2 klst. í senn. Að afloknu námskeiði hófust æfingar á leikverkinu Strandaglópum sem Guðmundur leiðbeinandi samdi í samvinnu við hópinn. Verkið fjallaði um hóp fólks sem lendir í skipsskaða og skolar upp á eyðieyju. Sýnt var tvisvar sinnum við ágæta aðsókn og undirtektir.

Stjörnuljósakvöld og Trú, von og trúðleikur

Stjörnuljósakvöld, árleg innanfélagsskemmtun LK var haldin fyrsta laugardag ársins skvt. venju. Þar voru sýndir 6 leikþættir, þar af 4 frumsýndir. Þættirnir voru Leikboðinn eftir Örn Alexandersson, Bæn eftir Fernando Arrabal, Man það ekki alveg í augnablikinu… eftir Nick Zagone, Charlie eftir Fjölni Gíslason, Áttu íbúfen, ég er með svo mikla trúðverki eftir Fjölni Gíslason og Jón Gunnar Garðarsson og Á stofunni eftir Bjarna Guðmarsson. Auk þess voru tónlistaratriði á dagskránni sem lukkaðist vel. Leikdagskráin var síðan sýnd aftur síðar í vikunni undir heitinu Trú, von og trúðleikur.

Óþarfa offarsi

Í lok nóvember var samlestur á stóra verkefni vormisseris sem var nýr bandarískur farsi er nefndist Óþarfa offarsi á íslensku. Hörður Sigurðarson leikstýrði og þýddi. Kastað var i hlutverk og æfingar hafnar en síðan var gert hlé yfir jólahátíðina. Frumsýnt var að lokum 21. febrúar, öllu síðar en áætlað var. Ástæðan fyrir því var mikil afföll í leikarahópnum en um miðjan janúar kom í ljós að fá þurfti inn nýjan leikara fyrir Friðfinn sem forfallaðist vegna hásinarslits. Héðinn stökk inn fyrir hann með miklum glæsibrag. Rúmri viku fyrir frumsýningu heltist síðan Arnfinnur úr lestinni en til allrar hamingju áttum við hauk í horni þar sem Örn Alexandersson er en hann vílaði ekki fyrir sér að stökkva inn þó svo skömmu fyrir frumsýningu væri. Þess má geta að þegar ráðist var í aukasýningar í apríl þurfti Anna Margrét að draga sig í hlé en Hrefna kom inn fyrir hana. Það hefur því nær helmingur upphaflegs hóps þurft að draga sig út úr sýningunni sem hlýtur að vera einhverskonar met.

Offarsinn var sýndur 12 sinnum og var aðsókn góð. Valinn maður var í hverju rúmi utan sviðs sem innan enda báru ummæli gesta þess vitni. Sérstaklega verður þó að nefna frábæra vinnu þeirra Klæmint og Nicolaj við leikmyndina sem gerði mikið fyrir sýninguna. Áhorfendur voru duglegir að tjá sig um sýninguna á félagsmiðlunum og notuðu sumir hástemmd lýsingarorð. Leyfum þó gagnrýnanda Leiklistarvefsins þó að eiga síðasta orðið um sýninguna en m.a. sagði hann “… í stuttu máli er uppsetning Leikfélag Kópavogs á Óþarfa offarsi hreint út sagt æðisleg.”

Kvikmyndaskólinn

Kvikmyndaskólinn fékk inni í húsinu í desember samkvæmt venju. Samkvæmt venju var samstarfið gott og umgengni og samskipti eins og best verður á kosið.

Því miður urðum við hinsvegar að neita skólanum um aðstöðu í vor. Ástæðan er einfaldlega sú að starfsemi félagsins leyfir ekki lengur að láta húsnæðið á þessum tíma í útleigu. Þó það sé í sjálfsögðu gleðilegt að starfsemi okkar sé orðin svo mikil, þykir okkur miður að geta ekki hýst skólann sem hefur verið einn af okkar dyggustu og bestu leigjendum frá upphafi. Þess má geta að skólinn fékk inni í Bæjarbíói í Hafnarfirði og gekk það að sögn vel.

Leikfélag MK

Sorgarsagan með Leikfélag MK hélt áfram á leikárinu. Stjórn sendi bréf til Nemendafélags MK með afritum á Skólameistara MK, Bæjarráð og Lista- og menningarráð síðastliðinn ágúst þar sem reifaðar voru umkvartanir okkar vegna veru MK í húsinu í gegnum tíðina. Svar barst nokkrum vikum síðar undirritað af formanni Nemendafélagsins og Margréti Friðriksdóttur skólameistara. Inntak bréfsins var frómt frá sagt að bréfritarar blésu á umkvartanir félagsins og sögðu þær ýmist ýktar úr hófi eða jafnvel tilbúnar. Jafnframt héldu bréfritarar fram þeirri skoðun sinni að félaginu kæmi einfaldlega ekki við hvernig umgengni væri í húsinu meðan MK hefði það til umráða. Stjórn var skiljanlega brugðið við þessi viðbrögð og sendu annað bréf þar sem þessum staðhæfingum var vísað til föðurhúsanna og jafnframt lýsti stjórn því yfir að leikfélag MK kæmi því einungis inn í húsið á leikárinu ef fallist yrði á húsreglur sem settar voru fram í upphaflega bréfinu. Ekki heyrðist aftur í formanni NMK né skólameistara en greinilega hafa þau þó kvartað undan félaginu við kjörna fulltrúa bæjarins og/eða embættismenn, því seint í október var formaður LK boðaður á fund með Örnu Schram og Karenu E. Halldórsdóttur formanni L. og menningarráðs og Natalíu, nýjum formanni leikfélags MK. Á fundinum kom fram að Arna og Karen voru lítið inni í málinu og höfðu t.d. hvorug séð bréfasamskiptin sem sagt var frá að ofan. Nýr formaður leikféklags MK staðfesti hinsvegar flest það sem kvartað hafði verið yfir þar sem hún hafði verið óbreyttur þátttakandi í uppfærslu síðasta árs og upplýsti m.a. um ýmsar merkilegar athafnir fyrrum stjórnenda sem stjórn LK voru ókunnar. Til að gera langa sögu stutta lauk fundinum með því að Karen sagðist myndu ræða við skólameistara og formann Nemendafélagsins. Ekkert heyrðist um nokkurra vikna skeið þar til við vorum upplýst um að skólinn féllist á þá kröfu okkar að skipaður yrði umsjónarmaður af hálfu skólans. Þegar spurt var um afdrif annarra krafna okkar sagði Karen að best væri að LK og MK ræddu þetta milliliðalaust og sagðist myndu biðja Margréti að hafa samband.

Ekkert heyrðist frá MK frá októberlokum þar til um miðjan febrúar að formaður leikfélags MK hringir í formann LK og spyr hvenær hópurinn megi koma inn. Stóð hún í þeirri trú að búið væri að ganga frá samkomulagi.

Aftur styttum við langa sögu og á endanum féllumst við á sáttatillögu bæjarritara sem hafði verið blandað í málið, þar sem gengið var að helstu kröfum okkar. Einnig var gefið munnlegt loforð um að tækjaleiga 2 ára yrði greidd upp. Leikfélag MK kom inn í Leikhúsið 16. mars og ekkert breyttist, því miður. Umgengni var slæm, Securitas í stöðugu sambandi við formann LK þar sem brunakerfi var sambandslaust um lengri og skemmri tíma, svo eitthvað sé nefnt og til að kóróna skömmina neitaði Nemendafélagið að greiða tækjaleigu í bréfi sem skólameistari skrifaði persónulega undir. Eftir að hafa íhugað að vísa hópnum á dyr í ljósi þess að ekki var staðið við gefin loforð tók stjórn LK þá ákvörðun að leyfa hópnum að ljúka sýningum en stjórn er einhuga um að félagið geti ekki látið bjóða sér slíka framkomu í framtíðinni.

Ekki verður skilið við þessa tragedíu án þess að nefna að MK lofaði að ganga frá og fjarlægja sitt dót úr húsinu í síðasta lagi mánudaginn 31. mars. Formaður náði ekki að hitta formann leikfélags MK til að fara yfir frágang en fékk loforð þess efnis að allt dót yrði farið, húsið þrifið og tveir lyklar skildir eftir. Þegar að var komið kom í ljós að þrif voru í mýflugumynd, aðeins einn lykill skilinn eftir og tæki og tól frá MK á hráviði um andyri. Má þar nefna rafmagnsbassa á standi, bleksprautuprentara, strikamerkjaskanna, verkfærakassa, fatastanda og hljóðmixer svo eitthvað sé nefnt. Símhringingum og SMS sendingum vegna þessa var ekki svarað af formanni leikfélags MK. Ekki heyrðist hósti né stuna í 3 vikur vegna þessara muna en þá var loks haft samband og dótið loks fjarlægt. Engar spurnir eru hinsvegar af lyklinum sem ekki hefur enn verið skilað.

Leiklistarnámskeið

Í apríl hélt Hörður Sigurðarson leiklistarnámskeið og var það aðallega hugsað fyrir félagsmenn sem verið höfðu áður á námskeiði eða höfðu einhverja leikreynslu. 6 þátttakendur hófu námskeiðið en voru 5 þegar því lauk. Námskeiðið var samtals 18 klst.

Ást í meindýrum – 5 leikþættir

Í lok apríl hófst vinna við leikdagskrá sem frumsýna átti í lok maí. Fimm leikþættir voru sviðsettir undir stjórn 3ja leikstjóra, þeirra Guðmundar L. Þorvaldssonar, Stefáns Bjarnarsonar og Harðar Sigurðarsonar. Níu leikarar léku í eftirfarandi þáttum: Ást í hraðbanka eftir Bjarna Guðmarsson, leikstjóri Hörður Sigurðarson, Á veröndinni einn bjartan vormorgun eftir Alex Dremann, leikstjóri Hörður Sigurðarson, Bóksalinn eftir Örn Alexandersson, leikstjóri Stefán Bjarnarson, Líflína eftir Douglas Craven, leikstjóri Hörður Sigurðarson og Meindýr eftir Bjarna Guðmarsson, leikstjóri Guðmundur L. Þorvaldsson. Frumsýnt var 28. maí og önnur sýning var 30. maí. Dagskráin var ágætlega sótt og góður rómur að henni gerður.

Vinnudagur og leikárslokagrill

Sú hefð hefur skapast að ljúka leikárinu í júní með vinnudegi í leikhúsinu og grillveislu um kvöldið. Slíkt var gert á síðasta leikári og verður endurtekinn leikurinn nú laugardaginn 20. júní. Hnýtir það slaufu á afar viðburðaríkt og að flestu leyti vel heppnað leikár hjá Leikfélagi Kópavogs.

Fyrir hönd stjórnar LK,

Hörður Sigurðarson

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2013-2014
Leikárið er nú á enda og margt hefur á dagana drifið.

Átta félagsmenn sóttu Leiklistarskóla BÍL á Húnavöllum í júní á síðasta ári á námskeiðum í leiklist, leikstjórn og leikritun. Lítur út fyrir að svipaður fjöldi verði í skólanum í ár. Félagið styrkir félagsmenn að hluta í námið enda teljum við að það sé félaginu í hag að auðvelda félagsmönnum slíkt.

Töluverðar breytingar voru gerðar á starfsemi yngri félagsmanna. Eins og undanfarin ár rákum við unglingadeild fyrir áramót en þó voru gerðar nokkrar breytingar á fyrirkomulagi. Í stað þéttrar dagskrár í styttri tíma var ákveðið að lengja tímabilið og bjóða námskeið einu sinni í viku, 2 tíma í senn í 10 vikur samtals. Að námskeiði afloknu var unnið þéttar í 2 vikur til að koma upp leiksýningu sem sá dagsins ljós í lok nóvember undir heitinu Kemurr’ ádeit? Sýningin lukkaðist vel og var sýnd þrisvar sinnum.

Þar með er þó ekki sagan öll sögð því stjórn ákvað að bjóða einnig upp á námskeið fyrir 11-12 ára börn. Fyrirkomulagið var svipað og hjá þeim eldri, þ.e. einn tími á viku í 10 vikur en þó aðeins 1 klst. í senn. Í síðasta tíma var foreldrum boðið að sjá afrakstur námskeiðsins og gerðu góðan róm að. Eins og undanfarin ár sá Ástbjörg Rut Jónsdóttir um kennslu og leikstjórn.

Ætlunin var að bjóða upp á byrjendanámskeið fyrir leikara eins og undanfarin ár en nú brá svo við að aðsókn var ekki næg og því ákveðið að fresta námskeiði fram yfir áramót. Uppsetningu leikdagskrár var þess í stað flýtt og voru æfðir upp þrír leikþættir undir stjórn Hrundar Ólafsdóttur, Arnar Alexanderssonar og Harðar Sigurðarsonar. Þættirnir voru frumsýndir 1. október undir samheitinu Mixtúra. Meðal þáttakenda var fólk sem sótt hafði byrjendanámskeið fyrr um vorið.

Sýnt var þrisvar sinnum.

Bryddað var upp á nýjung í september þegar Hörður Sigurðarson hélt fyrirlestur um sögu leiklistar. Fámennt var en viðstaddir lýstu ánægju með framtakið og töldu sig nokkru fróðari eftir.

Síðsumars samdi félagið við Rúnar Guðbrandsson um leikstjórn á sýningu í fullri lengd sem frumsýnd skyldi eftir áramót. Formaður og Rúnar lögðust í leit að hentugu verkefni og voru gefnar þær forsendur að velja klassískt verk með áherslu á krefjandi kvenhlutverk. Haldnar voru leiksmiðjur í október og nóvember með áhugasömum og á endanum var ákveðið að setja upp Þrjár systur eftir Anton Tsjekhov. Æfingar hófust seinnipart nóvember en gert var hlé yfir hátíðarnar. Þráðurinn var tekinn upp strax eftir áramót og stífar æfingar voru til 29. janúar þegar frumsýnt var.

Samdóma álit er að afar vel hafi tekist til við uppsetninguna á öllum póstum. Leikstjórn, leikur, leikmynd, búningar og tæknivinna var framúrskarandi og áhorfendur notuðu stór orð til að lýsa ánægju sinni. Sautján leikarar tóku þátt í sýningunni. Fagmennska á öllum sviðum einkenndi Þrjár systur og félagið getur verið afar stolt af niðurstöðunni. Sýndar voru 9 sýningar og voru flestar fyrir fullu húsi.

Að venju hélt félagið svo sitt árlega Stjörnuljósakvöld í kringum afmæli félagsins sem er 5. janúar. Á dagskrá var gamanþátturinn Kirsuberjasysturnar þar sem ögn var skopast að Tsjekhov. Einnig steig Leikhúsbandið á svið og flutti lög við góðar undirtektir.

Byrjendanámskeið sem frestað hafði verið í haust hófst loks í byrjun febrúar. Aðsókn var mikil og um tíma stóð til að halda annað námskeið í kjölfarið til að koma til móts við hana en á endanum varð ekki úr því. Átta manns sóttu námskeiðið sem gekk vel og hefur þegar skilað nýju fólki á svið hjá félaginu.

Samkvæmt venju fékk Leikfélag MK leikhúsið til afnota á leikárinu, að þessu sinni í mars. Á ýmsu hefur gengið í gegnum árin meðan á veru þeirra í húsinu hefur staðið en nú tók steininn úr. Hægt væri að skrifa langan pistil um vandamálin sem upp komu en hér verður látið nægja að nefna að írekaðar kvartanir bárust frá nágrönnum okkar í Funalindinni vegna hávaða um nætur, formaður leit við í húsinu einn morguninn og var þá húsið ólæst og öll ljós kveikt og við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þannig hafði það verið síðan kvöldið áður. Auk þess kom í ljós að brunakerfi hafði verið tekið úr sambandi og var sambandslaust svo dögum skipti. Ótal önnur atriði mætti telja en verður það þó ekki gert hér. Formaður hafði samband við skólameistara MK sem mun aftur hafa haft samband við hópinn en það dugði ekki nema í stuttan tíma þar til aftur fór að síga á ógæfuhliðina. Stjórn hefur rætt málið og samþykkt að Leikfélag MK muni ekki fá aðstöðu í húsinu á næsta leikári. Því hefur verið komið á framfæri við skólameistara en ekki hefur borist svar vegna þessa. Þessari ákvörðun verður því aðeins breytt að gagngerar breytingar verði á skipulaginu og er fyrsta krafan sú að skýrt verði kveðið á um ábyrgð á veru hópsins í húsinu og að fullorðinn starfsmaður skólans verði skipaður til að hafa umsjón með og ábyrgð á veru þeirra í Leikhúsinu.

Æfingar hófust í byrjun apríl á leikdagskrá sem frumsýnd var í lok maí undir heitinuVorverkin. Þrír leikþættir voru sýndir; Úlfur í ömmugæru eftir Guðmund L. Þorvaldsson í leikstjórn hans, Strikið eftir Pál J. Árdal í leikstjórn Arnar Alexanderssonar og Bóleró eftir David Ives í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar.

Allnokkuð var framkvæmt í húsinu á árinu og er þar helst að nefna að rafmagnsmál voru loks tekin almennilega í gegn enda hafa þau verið í ólestri frá opnun hússins. Þessar framkvæmdir voru okkur dýrari en upphaflega var áætlað en bráðnauðsynlegar og eru nú í mun betra horfi. Enn er ýmislegt eftir í þessum málum og mun ný stjórn ákveða framkvæmdir í samræmi við fjárhag.Við rafmagnsvinnuna kom í ljós slæmur leki í þaki andyris.Var ekki um annað að ræða en fá hann lagaðan strax og bættust þar við óvænt útgjöld. Ótalið er síðan að milli jóla og nýárs kom saman lítill en öflugur hópur og smíðaði ljósabrú framan á tæknibúrið.Var sú framkvæmd mikil búbót fyrir ljósahönnuði og sparar mikinn tíma og pening.

Áfram hefur verið haldið í tækjakaupum fyrir húsið og keyptir voru nokkrir ljóskastarar auk þess sem fest voru kaup á hljóðkorti og fjórum hátölurum. Leikhúsið er því enn betur tækjum búið en búast má við að enn verði haldið áfram að bæta tækjakostinn þó líklega megi hægja ögn á í þeim efnum.

Ýmsir aðilar leigðu aðstöðuna í leikhúsinu og er þar helst að nefna vini okkar hjá Kvikmyndaskólanum sem æfðu upp leiksýningar í desember og svo aftur í maí. Í ágúst voru haldnir tónleikar og flutt tónlist eftir Helga Rafn Ingvarsson sem hefur komið við sögu hjá leikfélaginu. Í desember var einnig haldin danssýning i húsinu. Þá sýndi Hlutverkasetur tvisvar í húsinu og var seinni sýningin liður í Kópavogsdögum í maí. Þá er von á Waldorskólanum sem hyggst hafa nemendasýningu í byrjun júní. Leikhúsið er orðið nokkuð eftirsótt enda er aðstaðan sífellt að batna.

Formaður sótti aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga í Vestmannaeyjum í byrjun maí. Helsta mál á dagskrá var bág fjárhagsstaða hreyfingarinnar. Félagið fékk sérstakar þakkir fyrir 150.000 kr. styrk sem það veitti til Þjónustumiðstöðvarinnar til að hægt væri að ná endum saman. Það er skoðun okkar að áhugafélögunum sé það brýn nauðsyn að viðhalda rekstri skrifstofu BÍL með sómasamlegum hætti.

Fyrir hönd stjórnar LK Hörður Sigurðarson

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2012-2013
Frá opnun leikhússins að Funalind fyrir fimm árum hefur starfsemi leikfélagsins vaxið ár frá ári. Nýliðið leikár var engin undantekning frá því enda hófst það snemma með sýningu á Hringnum í Þjóðleikhúsinu í júní. Því ævintýri var alls ekki lokið því í október skundaði hópurinn til Rokiskis í Litháen og tók þar þátt í Interrampa leiklistarhátíðinni.Vorum við þar í hópi nokkurra leikhópa frá Litháen auk sýninga frá Armeníu og Hollandi og einnig tóku listamenn frá Póllandi og Rússlandi þátt.

Unglingadeildin hóf störf í október undir stjórn Ástbjargar Rutar Jónsdóttur. Byrjað var á námskeiði og síðan tekið til við að æfa upp heimasmíðaða leiksýningu. Hún leit dagsins ljós í nóvember og bar heitið Milli tveggja heima.Var þar á ferðinni falleg saga um reynsluheim unglingsins, skemmtilega flutt af 12 manna hópi. Sýnt var 4 sinnum.

Hörður Sigurðarson hélt framhaldsnámskeið í september og október fyrir þá sem verið höfðu á byrjendanámskeiði árið áður. Sá hópur ásamt nokkrum til viðbótar æfði síðan upp nokkra leikþætti sem forsýndir voru á Stjörnuljósakvöldi þ. 5. janúar sem er afmælisdagur félagsins. Voru þar 4 leikþættir sýndir undir samheitinu Harmur, hundar og hýrar konur. Einn þáttur var eftir Örn Alexandersson sem einnig leikstýrði en Hörður leikstýrði tveimur eintölum eftir Dario Fo og Franca Rame og að auki Girnd á Geirsnefi eftir Dennis Schebetta. Samtals var sýnt 4 sinnum í janúar og febrúar fyrir fullu húsi. Eintölin tvö í flutningi Helgu Bjarkar Pálsdóttur og Hildar Tryggvadóttur voru síðan sýnd á einþáttungahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga í Logalandi í Borgarfirði við góðar undirtektir.

Í desember var kallað til kynningar á stóra verkefni ársins sem var leikgerð á Guttavísum og fleiri kvæðum eftir Stefán Jónsson. Örn Alexandersson gerði leikgerð og leikstýrði. Frumsýnt var 22. febrúar. Sýningin hlaut mikla aðsókn enda spurðist hún vel út auk þess sem við fengum mjög góða umfjöllun í barnablaði Morgunblaðsins og einnig voru atriði úr sýningunni sýnd í Stundinni okkar. Gert var mánaðarhlé á sýningum þegar Leikfélag MK kom í húsið en þráðurinn tekinn upp að nýju eftir páska.Alls var sýnt 12 sinnum og var uppselt á allar sýningar.

Blásið var til byrjendanámskeiðs í leiklist í lok janúar og sóttu það 8 manns. Sá hópur ásamt tveimur gestaleikurum sýndi síðan 4 leikþætti í maí undir yfirheitinu 4 x Tveir. Sýnt var tvisvar fyrir fullu húsi við góðar viðtökur. Hörður Sigurðarson stjórnaði námskeiðinu og leikstýrði leikdagskránni.

Þá má geta þess að 7 meðlimir félagsins fóru í Leiklistarskóla BÍL á Húnavöllum síðastliðið sumar á námskeið í leiklist, trúðleik og leikstjórn.

Áfram var haldið framkvæmdum og tækjakaupum fyrir leikhúsið. Fest voru kaup á 8 kösturum og einnig fjárfestum við í tveimur dimmerum svo nú eru 36 rásir til reiðu fyrir ljósameistara í húsinu sem auðveldar alla vinnu, sérstaklega þegar fleiri en ein sýning er í gangi. Þá er búið að koma upp fyrirtaks æfingaljósum í sal svo ekki þurfi að keyra ljóskerfið að óþörfu sem ætti að spara rafmagn og perur. Einnig má nefna að keypt var ný tölva og hugbúnaður fyrir hljóð og mynd auk skjávarpa. Hefur sá búnaður þegar sannað gildi sitt.Töluvert hefur verið unnið í frágangi og lagfæringum í húsinu og að öðrum ólöstuðum hefur Bjarni Daníelsson farið þar fremstur í flokki. Er honum hér með þakkað fyrir góð störf. Fjölmargir hafa lagt hönd á plóg á sviðinu sem utan þess og færir stjórn þeim einnig þakkir.

Leikhúsið var leigt og lánað til ýmissa verkefna á liðnu ári. Má þar fyrst nefna leikhópinn ONE sem hóf æfingar í október og frumsýndi síðan og sýndi verkið Tamam Shud eftir áramót. Unnu þeir að jafnaði á daginn og gekk samstarfið með eindæmum vel enda ljúft fólk þar í forsvari.

Leikfélag MK fékk húsið til umráða í byrjun mars. Eftir mjög gott samstarf og umgengni á síðasta ári seig aðeins á ógæfuhliðina og gekk á ýmsu. Á því er enginn vafi að koma MK í húsið hefur afar truflandi áhrif á starfsemi okkar. Engin augljós lausn er á því máli en ljóst að vilji okkar er til breytinga þegar rekstrarsamningur við bæinn verður tekinn til endurskoðunar árið 2017.

Kvikmyndaskólinn tók húsið á leigu samkvæmt venju í desember og einnig 2 vikur í maí. Samstarfið við þau gengur með miklum ágætum þar sem umgengni og frágangur er til fyrirmyndar.

Leikfélagið Grímnir sýndi 2 sýningar á Karíus og Baktus í Leikhúsinu fyrir áramót. Hópur á vegum félagsmiðstöðvarinnar Molans tók húsið á leigu nú í byrjun júní og einnig var eitthvað um dagparts- og dagsleigu á húsinu m.a. til kvikmyndagerðar og útskriftarsýninga svo eitthvað sé nefnt.

Sú nýjung var tekin upp á þessu leikári að ganga til samninga við Miðakaup um sölu og skipulag miðasölu. Hefur það gengið afar vel þó ýmsir hnökrar á kerfinu hafi hamlað. Aðstandendur Miðakaupa hafa þó brugðist vel við kvörtunum og óskum og allar líkur á að við höldum áfram að nýta okkur þjónustu þeirra.

Fyrir hönd stjórnar LK Hörður Sigurðarson

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2011-2012
Einu viðburðaríkasta ári í sögu leikfélagsins er að ljúka. Starfsemin hefur verið meiri en nokkru sinni síðan við fluttum í Funalindina og gestakomur einnig tíðari en áður.

Í september og október stóð félagið fyrir tveimur námskeiðum. Rúnar Guðbrandsson hélt námskeið í leiktækni sem 6 manns skráðu sig á. Eitthvað kvarnaðist þó úr hópnum og því miður nýttist námskeiðið ekki eins og lagt var upp með sem var mikil synd enda Rúnar með afbrigðum öflugur kennari.

Þá hélt Hörður Sigurðarson byrjendanámskeið í leiklist og voru 7 þátttakendur á því. Að afloknu byrjendanámskeiði voru síðan settir upp 4 leikþættir sem sýndir voru í nóvember undir heitinu Ferna. Tókust þeir vel og voru sýningarnar þrjár vel sóttar.

Unglingadeild félagsins setti upp nýtt heimasmíðað verk sem bar nafnið Vertu úti og var þar unnið upp úr íslenskum þjóðsögum og ævintýrum á nýstárlegan hátt. Eins og árið áður var Gríma Kristjánsdóttir leiðbeinandi hópsins og skilaði hún góðu starfi. Vertu úti var sýnt 3 sinnum við ágæta aðsókn.

Í desember var haldinn undirbúningsfundur fyrir stóra verkefni vetrarins. Var þar unnið út frá hugmynd frá Herði og Sváfni Sigurðarsonum og hafði verkið vinnuheitið Hringurinn sem varð svo reyndar með tímanum heiti sýningarinnar. Hugmyndavinna hafði þá staðið yfir í nokkra mánuði ásamt Hrefnu Friðriksdóttur sem skrifaði að lokum handrit sem unnið var eftir.

Æfingar hófust í byrjun janúar og frumsýnt var 26. febrúar. Tólf leikarar tóku þátt í sýningunni og þar af um helmingur sem hafði gengið í félagið þá um haustið. Auk þeirra komu margir aðrir að sýningunni, sumir nýir en einnig lögðu hönd á plóg gamlir félagar sem verið höfðu í löngu hléi. Hringnum var vel tekið og aðsókn þokkaleg. Sýnt var 7 sinnum í febrúar og mars en þá þurfti að gera hlé á sýningum meðan Leikfélag MK fékk inni í húsinu. Þrjár aukasýningar voru í maí en eins og stundum áður reyndist erfitt að ná upp dampi eftir hlé. Rúsínann í pylsuenda Hringsins var síðan er valnefnd Þjóðleikhússins útnefndi sýninguna Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins og bauð félaginu að sýna í Þjóðleikhúsnu. Hringurinn verður sýndur í Kassanum föstudaginn 22. júní næstkomandi. Ekki er þó víst að þar með sé ævintýrið úti því sýningunni hefur verið boðið á leiklistarhátíð í Lithén í haust og eru allar líkur á að hópurinn fari þangað í haust.

Unglingadeild félagsins hafði ekki sagt sitt síðasta eftir Vertu úti, því í apríl hófust æfingar á leikþáttum undir stjórn Kristínar Rósar Birgisdóttur. Níu unglingar taka þátt í því verkefni og verður afraksturinn sýndur föstudaginn 8. júní.

Í maí hófst síðan höfundasmiðju undir stjórn Hrefnu Friðriksdóttur og sóttu það 7 upprennandi leikskáld úr félaginu. Þá hélt Hörður Sigurðarson aftur byrjendanámskeið í apríl og voru 8 þátttakendur á því.

Félagið hélt sína árlegu Stjörnuljósahátíð fyrstu helgi eftir áramót og áttu félagsmenn þar afar ánægjulega kvöldstund þar sem ýmislegt var til skemmtunar svo sem leikþættir, uppistand og tónlist.

Ónefnt er síðan af verkefnum leikársins, leikverk sem sýnt var eftir aðalfund fyrir ári síðan þar sem 6 örverkum var steypt saman í lauslega heild. Leikarar voru Erna Björk Einarsdóttir og Sigríður Björk Sigurðardóttir en Hörður Sigurðarson leikstýrði.

Starfsemi félagsins var eins og heyra má mikil á liðnu ári en auk þess hafa ýmsir gestir látið ljós sitt skína í húsinu. Fyrst er að telja Kvikmyndaskóla Íslands sem hefur verið fastur gestur í húsinu undanfarin ár. Leikdeild skólans setti upp leiksýningu hjá okkur í desember og aftur nú í maí. Samstarfið við Kvikmyndaskólann er með miklum ágætum og ber þar hvergi skugga á.

Leikfélag MK kom inn í húsið í mars og hafði það til umráða í 3 vikur. Afar vel gekk með samstarfið í fyrra eins og áður hefur komið fram en því miður voru ýmsir misbrestir að þessu sinni. Frágangur var ekki með þeim hætti sem við vildum og greinileg þörf á því að taka skipulagið fastari tökum.

Stoppleikhópurinn hefur einnig verið gestur okkar í vetur. Upphaflega fengu þau inni til að æfa upp leikverkið Hústökuna eftir Hrund Ólafsdóttur sem er reyndar gamall félagi okkar. Að lokum varð ofan á að þau frumsýndu verkið í húsinu og sýndu í allt 4 sýningar.

Að framansögðu má sjá að leikhúsið hefur verið í notkun nánast daglega í allan vetur og oft og tíðum hafa allt að þrír hópar unnið þar samtímis. Utansviðs hefur einnig margt verið í gangi. Verið er að vinna að því að ljúka ýmsum frágangi í rafmagnsmálum sem beðið hefur óþægilega lengi. Þá hefur félagið einnig fjárfest umtalsvert í tækjabúnaði og þá aðallega ljósabúnaði. Keyptir voru svokallaðir Socapex kaplar sem auðvelda til muna alla vinnu við ljós og auk þess bættust 11 nýir kastarar í safnið. Þegar allt er talið hefur félagið keypt tækjabúnað fyrir á aðra milljón króna á árinu. Frekari tækjakaup eru fyrirhuguð og má þar nefna loftræstikerfi sem mikil þörf er fyrir og einnig er fyrirhugað að fjölga ljósarásum með þvi að kaupa tvo sex rása dimmerrekka. Smám saman er tækjabúnaður okkar því að komast í ásættanlegt horf og að ári eða tveimur liðnum ættum við að státa af einu best búna leikhúsi landsins miðað við stærð.

Að lokum vill stjórn félagsins ljúka þessari skýrslu með því að rifja upp að eitt helsta markmið okkar á þessu leikári var að stækka leikhópinn og auka nýliðun og það hefur sannarlega tekist vel. Sést þess glögglega merki í ýmsum verkefnum okkar í vetur. Þó gott sé að vera vel tækjum búinn er það að sjálfsögðu fólkið sem er okkar helsta auðlind. Við þökkum nýjum sem eldri félagsmönnum fyrir skemmtilegt og gjöfult leikár og hlökkum til að hittast að nýju í haust.

f.h. stjórnar LK

Hörður Sigurðarson

Skýrsla stjórnar Leikfélags Kópavogs 2010-2011
Enn eitt leikárið er að baki. Það hófst fyrr en venjulega þar sem sýningin Umbúðalaust var valin til að vera opnunarsýningin á NEATA leiklistarhátíðinni á Akureyri í ágúst á síðasta ári. Ekki aðeins var það heiður fyrir okkur að opna hátíðina heldur vorum við ekki síður stolt af því að vera fyrsta opinbera sýningin í hinu nýja og stórglæsilega menningarsetri Norðlendinga, Ho . Sýningunni fyrir norðan var áka ega vel tekið og okkar fólk var til sóma á allan hátt, á sviði sem utan þess. Gagnrýnendur luku lofsorði á Umbúðalaust og mál manna að sýningin hefði sómt sér vel sem opnunarsýning hátíðarinnar.

Unglingadeildin okkar hóf störf í september undir stjórn Grímu Kristjánsdóttur. Eftir stutt og snarpt nám- skeið þar sem farið var í grunnatriði hópvinnu í leikhúsi hóf fríður hópur 6 unglinga, æ ngar á nýju frumsömdu verki. Það hlaut nafnið Beðið eftir græna kallinum og var þemað græðgi og undirferli. Það verður að segjast að leikstjóra og hóp tókst einstaklega vel upp og áhorfendur sáu áhrifamikla og skýra sögu með einföldum og sterkum boðskap sem krydduð var dágóðum skammti af húmor. Unglingarnir lögðu einnig land undir fót og fóru í leikferð austur á Sólheima í jólamánuðinum og sýndu eina sýningu þar. Var þeim vel tekið af íbúum og gestum staðarins. Stjórn hefur þegar átt viðræður við Grímu um framhald á star hennar með Unglingadeild og er allar líkur á að hún taki til óspilltra unglinganna þegar kemur fram á haust.

Stóra verkefni leikársins var farsinn Bót og betrun eftir Michael Cooney. Var þar um að ræða Íslandsfrum- sýningu á farsanum sem var þýddur fyrir uppsetninguna af Herði Sigurðarsyni sem einnig sá um leikstjórn. Tíu manna leikhópur hóf æ ngar um miðjan janúar og frumsýnt var 11. mars. Sýningunni var afar vel tekið af áhorfendum og aðsókn mjög góð fyrstu átta sýningarnar. Því miður þurfti að gera hlé á sýningum í lok mars þar sem Leikfélag Nemendafélags MK fékk húsið þá til umráða. Það verður að segjast að tímasetningin var okkur mjög óhagstæð. Mjög góður gangur var kominn í miðasölu og sýningin hafði greinilega spurst vel út. Þrjár au- kasýningar voru í byrjun maí þegar við fengum húsið aftur til umráða en ekki reyndist unnt að sýna oftar vegna tímaleysis ýmissa þáttakenda enda hafði leikhópurinn þá verið að í langan tíma. Leikmynd Bót og betrun sem var nokkuð viðamikil og lýsing var í umsjá félaga okkar í öllistahópnum Norðanbáli og skiluðu þeir góðu verki. Leikhópurinn sá um búninga og leikmuni og ýmsir aðrir félagsmenn lögðu einnig hönd á plóginn.

Það er ljóst að félagið varð af allnokkrum tekjum vegna komu MK-inga í leikhúsið þó ekki væri við þá að sakast í þeim efnum. Þá varð vera skólans í húsinu einnig til þess að Kvikmyndaskóli Íslands sem hefur verið reglule- gur leigjandi í húsinu varð að leita annað með vorverkefni sitt og urðum við þar einnig af húsaleigutekjum. Hinsvegar verður að geta þess að mikil umbreyting varð á veru Menntskælinga í húsinu. Eftir er ðar samvistir og slæma umgengni undanfarin ár brá svo við að þeir voru til fyrirmyndar í umgengni og samneyti. Það má að mestu ef ekki öllu leyti rekja til þess að í fyrsta sinn var skipaður fulltrúi frá skólanum sem sýndi mikið og gott aðhald og var í góðum samskiptum við okkur. Stjórn hefur nú ritað bréf sem ætlunin er að senda til y rmanna skólans þar sem þakkað er fyrir samstar ð og ánægju lýst með þau umskipti sem orðið hafa.

Eins og áður sagði þurfti Kvikmyndaskólinn að leita annað með vorverkefni sitt en þau höfðu húsið hinsvegar á leigu í desember eins og undanfarin ár. Samstarf við skólann er með miklum ágætum og vonandi að fram- hald verði á því. Af öðrum verkefnum má nefna að um áramót var haldið hið árlega Stjörnuljósakvöld þar sem félagar komu saman og skemmtu sér og hver öðrum með ýmsu móti. Þá sýna nokkrir félagar nú stutta dagskrá örleikrita i tengslum við aðalfund.

Götuleikhúsið sem er á vegum Vinnuskóla Kópavogs hafði aðstöðu í húsinu á tímabilinu júní- júlí ár á síðast ári eins og kveðið er á um samkvæmt samningi félagsins við bæinn. Samstar ð við Götuleikhúsið hefur gengið vel enda hafa báðir aðilar lagt sig fram um að allt gangi vel fyrir sig.

Enn standa y r framkvæmdir í leikhúsinu og hefur það hægt og bítandi verið að taka á sig endanlegt útlit. M.a. er búið að koma hitaker hússins í betra lag, salerni fyrir fatlaða hefur verið tekið í notkun og ræstikompa og geymsla fyrir verkfæri og ýmsan búnað tekin í gagnið. Tækjabúnaður hefur verið e dur og við erum nú betur í stakk búin til að taka á móti utanaðkomandi hópum sem vilja nýta húsið til sýninga. Sitthvað er ógert enn en við getum loks kinnroðalaust boðið fram húsið sem fullbúið hús til leiksýninga og annarra uppákoma.

Stóra áskorun okkar á komandi misserum er að stækka kjarnann í félaginu og tryggja æskilega nýliðun. Það sem helst stendur okkur fyrir þrifum er mannfæð og stjórn hefur þegar rætt leiðir til að bæta úr því. Við horfum björtum augum fram á veginn nú þegar við leggjumst í okkar sumardvala og hlökkum til spennandi nýrra verkefna á næsta leikári.

Fyrir hönd stjórnar Leikfélags Kópavogs Hörður Sigurðarson