Leikfélag Kópavogs hefur ráðið Vigdísi Jakobsdóttur til að setja upp sýningu hjá félaginu í haust. Sýningin verður unnin frá grunni með devised aðferðum og hefur verið ákveðið að hrinda verkefninu úr vör nú þegar. Hér með boðar því félagið vinnubúðir (workshop) með Vigdísi í Leikhúsinu til að undirbúa haustverkefnið.

Unnið verður á eftirfarandi tímum:

Lau. 16. maí kl. 9.30-12.30
Mið. 20. maí kl. 19.30-22.30
Fim. 21. maí kl. 11.00-14.00 (Uppst.dagur)

Lesa nánar: Haustverkefnið hafið