Mánudaginn 14. mars hefst leiklistarnámskeið á vegum leikfélagsins sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun.
Leiðbeinandi er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár.
Námskeiðið verður í sex skipti alls, þrjár klst. í senn. Aldurstakmark er 21 árs og námskeiðsgjald er 8.000 kr. fyrir utanfélagsmenn en skráðir félagsmenn greiða 2.500 kr.

Lesa nánar: Leiklistarnámskeið fyrir byrjendur