Langar þig að spreyta þig á leiksviði? Viltu láta gamlan draum rætast? Viltu taka þátt í liststarfi þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum?

Í september verður í boði leiksmiðja sem er aðallega hugsuð fyrir nýja félaga með áherslu á byrjendur og styttra komna í leiklist. Farið verður í grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun.
Leiðbeinandi er Hörður Sigurðarson sem hefur starfað sem leikstjóri hjá leikfélögum víða um land en þó aðallega hjá Leikfélagi Kópavogs undanfarin ár. Hann setti m.a. upp farsann Bót og betrun hjá félaginu í fyrra.
Athugið að leiksmiðjan er ætluð 21 árs og eldri. Leiksmiðjan hefst mánudaginn 19. september verður í 6 skipti á mánudögum, fimmtudögum og laugardögum til og með 1. okt. 20.00-23.00 mán. og fim. 10.00-13.00 lau.
Að leiksmiðjunni lokinni verða æfðir upp stuttir leikþættir sem frumsýndir verða í byrjun nóvember.

Þeir sem hafa áhuga á að vera með þurfa að senda póst á lk@kopleik.is með nafni og símanúmeri.