Félagsmenn sem hafa áhuga á að taka þátt í leiklistarverkefni sem ætlunin er að sýna á Stjörnuljósakvöldi leikfélagsins í byrjun næsta árs, mæti á fund í Leikhúsinu, fimmtudaginn 7. nóvember kl. 18.00. Áhugasamir og forvitnir velkomnir.

Mánudagur, 28. október 2013 09:39 TILBOÐ Á HJARTASPAÐA
HjartaspadarNú eru að hefjast að nýju sýningar á hinum vinsælu og margverðlaunuðu Hjartaspöðum í leikstjórn Ágústu Skúladóttur – fyrirhugaðar eru sex sýningar og nú er tækifæri fyrir þá sem misstu af í fyrra að tryggja sér miða, sérstaklega þar sem Gaflaraleikhúsið býður félögum í LK 20% afslátt af almennu verði. Allar nánari upplýsingar má fá hjá Gaflaraleikhúsinu í síma 565-5900 og á facebook: facebook.com/hjartaspadar.

Lesa nánar: Tilboð á Hjartaspaða