Laugardaginn 20. sept. kl. 10.00-12.00 verður Leikhúsið tekið í gegn og gert klárt fyrir veturinn. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og leggja hönd á plóg og minnt á þau ævafornu sannindi að margar hendur vinna létt verk. Kl. 12.00 verður gert hlé á vinnu og boðið upp á kaffi og með því og fundað um leikdagskrá eins og kemur fram hér að neðan.