Leikfélag Kópavogs fagnar vorblíðunni með stuttverkadagskránni Ó mig auman, miðvikudagskvöldið 4. júní. Sýnd verða sex verk eftir höfunda í leikritasmiðju félagsins.
Leikritin eru í ýmsum dúr en eiga þó eitt og annað sameiginlegt.
Dagskráin hefst kl. 20.30 í Leikhúsinu við Funalind 2 og sýningartími er um klukkustund.
Miðasala er á Tix.is. Miðaverð 1.000,