Síðasta frumsýning leikársins verður næstkomandi sunnudag, 19. maí kl. 20. Þá verða fluttir fjórir leikþættir eftir fjórar íslenskar leikskáldkonur. Þetta eru Spurningar fyrir framan ísskápinn eftir Kristínu Gestsdóttur, Love me tender eftir Hrefnu Friðriksdóttur, Viltu vatn eftir Jónheiði Ísleifsdóttur og Þriðjudagskvöld eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Sex leikarar sem voru á byrjendanámskeiði í leiklist hjá Herði Sigurðarsyni í vetur flytja þættina ásamt tveimur gestaleikurum.
Miðaverð er 1.000 kr. og hægt að panta miða á www.midakaup.is/kopleik eða með því að senda póst á midasala@kopleik.is. Skuldlausir félagar eiga frímiða eins og venjulega.