Þrautirnar þrjár er samsköpunarverkefni á vegum Unglingadeildar leikfélagsins. Hópurinn samanstendur af þátttakendum á tveimur námskeiðum sem verið hafa í gangi síðan í byrjun september 2016. Annarsvegar hjá yngri hóp sem er 11-12 ára og hinsvegar eldri hóp sem í eru 13 ára og eldri. Leiðbeinendur á námskeiðunum og leikstjórar Þrautanna þriggja eru þau Gríma Kristjánsdóttir og Guðmundur L. Þorvaldsson er verkið samið í hópvinnu undir stjórn þeirra. Fullur salur áhorfenda fagnaði leikhópnum að lokinni sýningu.
Á myndinni má sjá leikhópinn og leikstjórana tvo. Í hópinn vantar Elías Mána Assadi.