Leiklistarnámskeið verður haldið í ágúst og september Leiklistarnámskeiðið er ætlað nýliðum og nýrri félögum. Þeir ganga fyrir sem ekki hafa sótt sambærilegt nýliðanámskeið áður. Núverandi félagsmenn ganga einnig fyrir utanfélagsfólki. Aldurstakmark er 21 árs. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár.
Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í 6 skipti og eru tímar sem hér segir:
Þri. 25. ágúst . 18.00 – 21.00
Fim. 27. ágúst 18.00 – 21.00
Lau. 29 ágúst 10.00 – 13.00
Þri. 1. sept. 18.00 – 21.00
Fim. 3. sept. 18.00 – 21.00
Lau. 5 sept. 10.00 – 13.00
Námskeiðsgjald er 10.000 kr. Skuldflausir félagsmenn í LK fá frítt á námskeiðið. Hægt er að skrá sig í félagið hér en félagsgjaldið er 6.000 kr. .
Umsókn á námskeiðið er gild þegar umsókn er samþykkt og námskeiðsgjald hefur verið greitt. Ef ekki næst lágmarksfjöldi á námskeiðið, fellur það það niður og umsækjendur fá endurgreitt.
Hér er hægt að skrá sig á námskeiðið:


