Síðasta partýið í blokkinni hefur verið haldið. Íbúarnir eru missáttir við þá ákvörðun og upp hefst leynimakk sem fljótlega fer úr böndunum.
En hver er ástæðan fyrir því að það verða ekki fleiri partý? Er það brotni sófinn, bilaði glugginn á baðherberginu eða merkingarnar á póstkössunum? Eða er það dularfulli fornleifafræðingurinn? Og hvaðan kom þessi frjósemisstytta?
Inn í atburðarásina dragast húsverðir, dyraverðir, stílistar, kaffibaristur, kaupglaðar konur og aðrir virkir og óvirkir partýpinnar sem öll eiga það sameiginlegt að vera í leit að hamingjunni í einhverju formi.

SÍÐASTA PARTÝIÐ
Frumsýnt 12. mars 2026
Höfundur:Aðalsteinn Jóhannsson
Leikstjórn Gísli Björn Heimisson

Leikendur:
Birta Rut Tiasha Sigfúsdóttir
Lilja Sigurðardóttir
Sigurbjörg Halldórsdóttir
Sigurður Kr. Sigurðsson
Aðalsteinn Jóhannsson
Bjarklind Þór
Davíð Máni Stefánsson

Leikmynd:
Örn Alexandersson
Gísli Björn Heimisson
Hörður Sigurðarson
Aðalsteinn Jóhannsson
Stefán H. Jóhannesson

Búningar og gervi:
Elín Sigríður Gísladóttir & leikhópurinn

Ljós og hljóð:
Hörður Sigurðarson og Hjördís Berglind Zebitz

Framkvæmdastjórn:
Ellen Dögg Sigurjónsdóttir

Sýningarstjórn:
Sigrún Tryggvadóttir & Sigríður Elín Olsen

Leikskrá:
Ingveldur Lára Þórðardóttir & Örn Alexandersson