Æfingar eru hafnar hjá Leikfélaginu á leikritinu Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard í þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar með lögum eftir Valgeir Skagfjörð. Leikfélagið frumsýndi leikritið árið 1989 í leikstjórn Valgeirs en nú leikstýrir Örn Alexandersson sýningunni en hann lék í uppfærslunni á sínum tíma. Stefnt er að því að frumsýna í byrjun mars.