Laugardaginn 19. febrúar frumsýndi unglingadeild Leikfélags Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind 2. Hópurinn sem skipaður er átta upprennandi leikurum hefur æft og þjálfað af kappi frá í haust undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.
Verkið sem nú liggur fyrir er afrakstur þeirrar vinnu en það er orðið til í spunavinnu og höfundar því leikstjórinn Guðmundur L. Þorvaldsson, aðstoðarleikstjórinn Víðir Örn Jóakimsson og unglingarnir í hópnum. Þeir heita: Agnes Engilráð Scheving, Anna Kristjana Ó. Hjaltested, Bjarni Erlendsson, Dagbjört Rós Jónsdóttir, Hanna Rún Jónasdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir. Auk þeirra hefur ýmsir félagsmenn lagt hönd á plóg við gerð leikmyndar og búninga, lýsingu og annað tilfallandi.
Lesa nánar: Blóðsystur frumsýndar