Föstudaginn 21. nóvember frumsýnir Leikfélagið Hugleikur veglega stuttverkadagskrá. Í boð eru ótal ólík verk til að feykja á brott sígandi skammdegi nóvember mánaðar. Þar má finna fláráðar konur, ýlandi karla, anda, asna og austurríska kanslara.
Alls verða tvær sýningar:
Föstudaginn 21. nóvember kl. 20.
Sunnudaginn 23. nóvember kl. 20
Aðgangseyrir 2.000 kr. – tilboð til félagsmanna LK kr. 1.000. Hægt er að panta miða hér. Takið fram frá hvaða leikfélagi þið komið.