Aukasýning á Fróða 13. maí
Vegna fjölda fyrirspurna og góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu á Fróða og öllum hinum grislingunum sunnudaginn 13. maí. Miðapantanir er á vef leikfélagsins kopleik.is. „Í húsinu á horninu á heima skrýtið fólk …“ – svona hefst upphafssöngur leikritsins Fróði og allir hinir gríslingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard sem Leikfélag Kópavogs frumsýnir næstkomandi laugardag. Og þetta er vægt til orða tekið! Í téðu húsi búa m.a. ástsjúkar ungfrúr, geðstirður kall og kátir krakkar sem finna upp á ýmsu sem fullorðna fólkinu finnst að þau ættu bara alveg að láta eiga sig. En þegar skelfileg innbrotaalda ríður...
Read More