Unglingadeild Leikfélagsins sýnir í kvöld, fimmtudaginn 4. mars kl. 20.00, spennutryllinn Blóðsystur. Leikhópurinn sem stendur að Blóðsystrum er skipaður átta upprennandi leikurum sem eru undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.
Verkið var unnið í spunavinnu og höfundar því leikstjórinn Guðmundur L. Þorvaldsson, aðstoðarleikstjórinn Víðir Örn Jóakimsson og unglingarnir í hópnum. Þeir heita: Agnes Engilráð Scheving, Anna Kristjana Ó. Hjaltested, Bjarni Erlendsson, Dagbjört Rós Jónsdóttir, Hanna Rún Jónasdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir. Auk þeirra hafa ýmsir félagsmenn lagt hönd á plóg við gerð leikmyndar og búninga, lýsingu og annað tilfallandi.

Blóðsystur er spennandi og skemmtileg sýning en best er að hafa sem fæst orð um söguþráðinn því sjón er sögu ríkari. Þó má geta þess að þar koma fram nokkrar guðhræddar stúlkur sem ekki eru allar þar sem þær eru séðar og hinn ráðagóði Sigurður vampírubani.

Miðapantanir skal senda á midasala@kopleik.is eða hringja í síma 554 1985. Skuldlausir félagar LK eiga frímiða á sýninguna en almennt miðaverð er 1.000 kr.*

* Aldraðir, öryrkjar, námsmenn, nunnur og vampírur fá helmingsafslátt af miðaverði.