Skemmtilegt og hjartnæmt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna eftir Aðalstein Jóhannsson og Oddfreyju Oddfreysdóttur
Það er langt liðið á aðfangadagskvöld þegar jólapakkarnir vakna til lífsins og furða sig á því að það sé enn ekki búið að opna þá! Hvar eru allir?
Einn pakki er öðruvísi en hinir og þegar hann hverfur verður uppi fótur og fit.
Misskilningur, tortryggni og ásakanir ganga á víxl og ekki skánar ástandið þegar skrímsli virðist leynast á meðal pakkanna.
Nú þurfa pakkarnir að standa saman, finna hinn týnda og sigrast á skrímslinu svo töfrar jólanna glatist ekki.

Persónur og leikendur
Fíni pakkinn: Ninna Karla Katrínar
Fúli pakkinn: Ellen Dögg Sigurjónsdóttir
Forvitni pakkinn: Ásdís Ægisdóttir
Gulli Gaukur Elvuson: Guðný Hrönn Sigmundsdóttir
Hasarpakkinn: Andri Þór Kragh Sigurjónsson
Klári Pakkinn: Árni Kristófer Grétarsson
Hundapakkinn: Gunnhildur Gísladóttir
Ljóti pakkinn: Sóldís Anna Jónsdóttir
Elva: Hrafnhildur Eva Brekadóttir
Álfur á hillu: Davíð Máni Stefánsson
Á bak við tjöldin
Leikstjóri: Ólafur Þórðarson
Framkvæmdastjóri: Steinunn Þorsteinsdóttir
Sýningastjórn: Sigrún Tryggvadóttir, Þórdís Sigurgeirsdóttir
Lagahöfundur: Ólafur Þórðarson
Textahöfundar: Aðalsteinn Jóhannsson, Oddfreyja Oddfreysdóttir, Ólafur Þórðarson
Undirleikur: Davíð Máni Stefánsson
Ljósa- og hljóðhönnun: Hörður Sigurðarson, Skúli Rúnar Hilmarsson
Tæknistjórn: Hjördís Berglind Zebitz
Leikmyndahönnun: Gísli Björn Heimisson
Leikmunahönnun: Hjördís Arnardóttir
Leikmynda og leikmunagerð: Aðalsteinn Jóhannsson, Gísli Björn Heimisson, Hjördís Arnardóttir
Búningahönnun: Selma Hilmisdóttir
Búningagerð: Hjördís Arnardóttir, Hulda Sif Ólafsdóttir, Ninna Karla Katrínar, Selma Hilmisdóttir
Hár og förðun: Ninna Karla Katrínar, Ormur Guðjónsson
Ljósmyndir: Ólafur Þórðarson, Sóldís Anna Jónsdóttir
Forsíðumynd: Hjördís Arnasdóttir, Ninna Karla Katrínar
Uppsetning leikskrár: Hjördís Berglind Zebitz
Aðstoð við leikskrá: Hulda Sif Ólafsdóttir
Hvíslarar: Gréta Hauksdóttir, Helga Bára Bragadóttir, Þórdís Sigurgeirsdóttir
Sjoppa: Bjarklind Þór, Hanna Rún Jónasdóttir, Margrét Einarsdóttir, Sigríður Olsen, Þórdís Sigurgeirsdóttir
Markaðsteymi: Birta Rut Tiasha Þórisdóttir, Bjarklind Þór, Guðný Hrönn Sigmundsdóttir, Ninna Karla Katrínar
Frumsýnt 14. nóvember í Leikhúsinu að Funalind.
Þegar jólapakkarnir vakna til lífsins
Jólin hafa verið hringd inn, húsið er hljótt og jólapakkarnir bíða enn óopnaðir undir trénu. En hvað er eiginlega í gangi? Af hverju hefur enginn opnað þá? Í Jólapökkunum vakna pakkarnir til lífsins seint á aðfangadagskvöld og uppgötva sér til mikillar furðu að eitthvað er ekki eins og það á að vera. Hvar eru allir? Fljótlega tekur atburðarásin óvænta stefnu. Einn pakkanna er öðruvísi en hinir og þegar hann hverfur verður uppi fótur og fit. Misskilningur, tortryggni og ásakanir taka við og ekki batnar ástandið þegar grunur vaknar um að skrímsli leynist meðal pakkanna.
Undir öllum látunum, húmornum, söngnum og hasarnum leynist þó hlý saga um vináttu, ólíka einstaklinga og mikilvægi þess að dæma ekki aðra eftir útlitinu. Pakkarnir eru nefnilega alls konar og hver þeirra hefur eitthvað sérstakt fram að færa. Jólapakkarnir eru litrík og fjörug fjölskyldusýning þar sem söngur, hraði og læti blandast saman við hlý og ljúf augnablik. Sýningin býður yngstu áhorfendunum inn í töfraheim leikhússins, heim þar sem persónur og sögur lifna við fyrir augunum á þeim.
Velkomin í heim jólapakkanna, þar sem jólin hafa verið hringd inn en ævintýrið er rétt að byrja.
Höfundur
Oddfreyja Oddfreysdóttir
Oddfreyja hóf leiklistarferil sinn þegar hún skráði sig á leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Ölfuss árið 2011. Árið eftir lék hún í Rummungi ræningja og sótti svo leiklistarnámskeið hjá Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 2014 og hefur árlega, fyrir utan eitt ár, sótt ýmis námskeið í þann skóla.
Þegar þau hjónin fluttu í bæinn gengu þau til liðs við Leikfélag Hafnarfjarðar, en þegar starfsemi félagsins lagðist af vegna húsnæðisskorts lá leiðin í Leikfélag Kópavogs, þar sem hún hefur starfað frá því hún lék í Ferðinni til Limbó árið 2024.
Oddfreyju hafði lengi langað til að skrifa barnaleikrit eftir að hafa upplifað hve skemmtilegt var að heyra börnin hlæja og skríkja yfir Rummungi ræningja og bað Aðalstein um að taka þátt í skrifunum með sér. Við skrifin reyndi stundum á ólíkar aðferðir hjónanna, en þau voru þó sammála um að verkið ætti að vera fyndið og skemmtilegt, en jafnframt hjartnæmt.
Auk Jólapakkanna hefur Oddfreyja samið eitt verk í fullri lengd og fjölmörg stuttverk, sem flest hafa það sameiginlegt, að hennar sögn, að vera uppfull af fíflagangi. Freyja gladdist sérstaklega yfir góðum viðtökum leikfélagsins við Jólapökkunum og hlakkar nú til að heyra viðbrögð áhorfenda, ekki síst hláturinn úr salnum.
Höfundur
Aðalsteinn Jóhannsson
Aðalsteinn sótti leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Ölfuss árið 2011 og fékk í kjölfarið hlutverk í leikritinu Himnaríki. Árið eftir sótti hann námskeið hjá Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga og hefur gert á hverju ári síðan. Þar kviknaði ástríða fyrir leikritun og hefur Aðalsteinn einkum skrifað stuttverk, en auk Jólapakkanna hafa tvö önnur verk eftir hann, Einn rjúkandi kaffibolli og Síðasta partýið, verið sett á svið. Bæði eiga þau það sameiginlegt að vera gamanleikrit.
Aðalsteinn hefur starfað með Leikfélagi Ölfuss, Leikfélagi Hafnarfjarðar og nú Leikfélagi Kópavogs. Stuttverkaformið úr Hafnarfirði, þar sem verk voru skrifuð eina helgina og sett á svið þá næstu, lifir nú áfram í Kópavogi. Hann telur slíkar sýningar frábæra leið til að gefa nýju fólki tækifæri til að prófa sig áfram. Hann segir laugardagsmorgnana í leikritasmiðju Leikfélags Kópavogs jafnframt dásamlegan vettvang til að fá útrás fyrir sköpunarþörfina.
Aðalsteinn horfir bjartsýnn til framtíðarinnar, enda nóg af hugmyndum sem bíða þess að komast úr höfðinu á honum og upp á svið.
Frá leikstjóra
Þegar maður tekur að sér að leikstýra jólaleikriti um pakka sem lifna við, hljómar það í sjálfu sér ekki svo flókið. Nokkrir pakkar, svolítil tónlist, smá dans og jólastemning.
Þegar setja á upp sýningu sem þessa er þó að mörgu að hyggja. Alls koma rúmlega þrjátíu manns að uppsetningunni og hefur þetta frábæra fólk lagt á sig ómælda vinnu til að gera hana að veruleika.
Ferlið hefur þó ekki verið áfallalaust. Einn úr leikhópnum handleggsbrotnaði og þurfti að hætta við hlutverk sitt. En í stað þess að draga sig í hlé hefur þessi frábæri félagi haldið áfram að taka virkan þátt í undirbúningnum eftir bestu getu. Þegar á reyndi sýndi Leikfélag Kópavogs enn og aftur hversu dýrmætt það er að eiga stóran hóp hæfileikaríkra félaga sem eru tilbúnir að hlaupa í skarðið með nánast engum fyrirvara. Það er meðal annars þeim að þakka að við getum staðið hér í dag og frumsýnt Jólapakkana.
Þetta er einmitt galdurinn við áhugaleikhúsið. Fólk gefur af tíma sínum, hæfileikum og orku til að skapa eitthvað saman og þegar eitthvað fer úrskeiðis er yfirleitt einhver sem segir: „Við reddum þessu.“ Og það gerum við.
Ég vil þakka öllum sem hafa komið að sýningunni fyrir ómetanlegt framlag, þolinmæði, gleði og samstöðu.
Vonandi njótið þið sýningarinnar og munið að það sem skiptir mestu máli er hugurinn sem fylgir og að fallegustu umbúðirnar geyma ekki endilega bestu gjöfina.
Gleðileg jól og góða skemmtun!
Ólafur Þórðarson
Lokalagið
Nú koma loksins þessi jól, jól, jól
Eins og álfar út úr hól, hól, hól
Krakkar komnir eru á ról, ról, ról
Hér dugar ekkert dól, dól, dól
Hér gleðin ein ríkir
og með bros á vör
við erum svo líkir
og handtökin snör
Nú koma loksins þessi jól, jól, jól
Eins og álfar út úr hól, hól, hól
Krakkar komnir eru á ról, ról, ról
Hér dugar ekker dól, dól, dól
Með þakklæti í hjarta
fyrir þessa litlu gjöf
með brosið bjarta
þú ert fallegasta gjöf
Nú koma loksins þessi jól, jól, jól
Eins og álfar út úr hól, hól, hól
Krakkar komnir eru á ról, ról, ról
Hér dugar ekker dól, dól, dól
Hér höfum við lært
að öll skipta máli
það er okkur kært
vinskapur úr stáli
: Nú koma loksins þessi jól, jól, jól
Eins og álfar út úr hól, hól, hól
Krakkar komnir eru á ról, ról, ról
Hér dugar ekker dól, dól, dól :
Þakkir
Mist&Co
Sýningin er styrkt af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs
Leikfélag Kópavogs er aðili að Bandalagi íslenskra leikfélaga


