Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir nýtt frumsamið leikverk, sunnudaginn 24. nóv. kl. 20.00. Verkið ber heitið Kemurr’á deit? og var það samið og unnið í hópvinnu undir stjórn leikstjórans Ástbjargar Rutar Jónsdóttur.
Unglingadeild LK hefur komið víða við á undanförnum árum og grandskoðað ýmislegt í mannlífinu og utan þess svo sem blóðsugur, Facebook, líf unglingsins og fleira. Nú er komið að ástinni sem hópurinn skoðar með sínum sérsmíðuðu gleraugum.
Lesa nánar: Kemurr’á deit?