Laugardaginn 8. desember næstkomandi verður haldin gleðisamkoma í nýju húsnæði félagsins að Funalind 2 til að marka þau tímamót sem nú eru hjá félaginu. Allir núverandi og einnig fyrrverandi félagar eru velkomnir á staðinn.
Haldin verður leikhússportkeppni auk annarra atriða en annars er ætlunin að spjalla saman, rifja upp gamla og nýja tíma og horfa fram á veginn. Þetta er einnig upplagt tækifæri fyrir þá félaga sem ekki hafa komið í Funalindina að skoða húsnæðið og kynna sér það sem í vændum er í starfseminni.
Lesa nánar: Gleðisamkoma 8. desember