Spennandi tímar í leikhúsinu á næstunni.
Snertu mig – ekki! sem frumsýnd var þann 16. september, hefur verið leikin fyrir fullu húsi. Sýningin hefur fengið frábæra dóma.
Aukasýningar eru komnar í sölu, 5. og 8. október. Miðasala, www.kopleik.is
Útvarspsleikhús: Leikfélagið boðar til samlestur sunnudaginn 2. október, kl. 10 í Leikhúsinu Funalind 2. Félagsmenn sem hafa hug á að taka þátt og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta.
Nýtt íslenskt barnaleikrit, Leitin að sumrinu, verður frumsýnt þann 14. október.
Barna- og unglinganámskeiðin eru komin á fullt.
Leiklistarnámskeið fyrir fullorðna hefst nú í byrjun október.
Hlökkum mikið til að upplifa frábært afmælisár með ykkur öllum.
Fylgist vel með okkur áfram!