Í byrjun október hefst leiklistarnámskeið á vegum leikfélagsins sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár.
Námskeið verður um 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í 6 skipti og aldurstakmark er 21 árs. Námskeiðsgjald er 8.000 kr. fyrir utanfélagsmenn en skráðir félagsmenn greiða 2.500 kr.
Athugið að skráning í félagið er öllum opin gegn 2.500 kr. félagsgjaldi. Sjá nánar hér.
Námskeiðið hefst mánudaginn 3. október.