Rukkanir vegna félagsgjalda hafa nú verið sendar í heimabanka félagsmanna. Gjaldið er óbreytt frá fyrra ári, 2.500 kr.
Vert er að benda á að ýmis fríðindi fylgja því að vera félagsmaður í Leikfélagi Kópavogs. Má þar m.a. nefna 50% afslátt á sýningar hjá flestum áhugaleikfélögum á suðvesturhorninu og reglulega fáum við einnig tilboð eða boðsmiða á sýningar og/eða aðalæfingar hjá stóru leikhúsunum.
Þeir sem vilja fá felldar niður kröfur í heimabanka geta sent beiðni um það í netfangið gjaldkeri@kopleik.is.