Fimmhurðafarsinn Bót og betrun hefur gengið fyrir fullu húsi, við frábærar móttökur undanfarnar vikur. Því miður þarf nú að gera hlé á sýningum í mánaðartíma en þeir sem ólmir vildu sjá sýninguna geta glatt sig við að 4 aukasýningar verða í maí. Nánar verður auglýst síðar hvenær þær sýningar verða.

Sjá nánari upplýsingar um sýninguna hér.

Þeir sem vilja fylgjast með starfi Leikfélagsins geta skráð sig á póstlista hér til vinstri á vefnum.