Barnaleiksýningin Leitin að sumrinu hefur fengið glimrandi viðtökur. Eftir stutt hlé mæta þeir félagar aftur í jólamánuðinum með 2 sýningar; sunnudaginn 18. og miðvikudaginn 28. des.
Nokkur ummæli áhorfenda af vefnum: “… við skemmtum okkur konunglega“, “Snilldar leikrit, mæli með þessu.“, “Get ekki annað en mælt með þessari sýningu fyrir börn á öllum aldri“, “Frábær skemmtun, takk fyrir okkur” og þannig heldur það áfram.