Fimmhurðafarsinn Bót og betrun hefur verið í fríi um skeið en snýr aftur í maí með látum. Þrjár aukasýningar verða sem hér segir:
Mið. 4. maí – Fim. 5. maí – Sun. 8. maí.
Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til svika þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara að komast á bætur en af þegar boltinn er einu sinni farinn að rúlla. Að endingu er hann rígfastur í eigin lygavef, fulltrúar Félagsmálastofnunar sækja að honum úr öllum áttum og eiginkonan er full grunsemda. Til að höggva á hnútinn þarf Eric að losa sig við upplogna bótaþega sína en vandinn vex bara með hverri viðleitni hans til að snúa við blaðinu.

Lesa nánar: Bót og betrun – aukasýningar í maí