Viltu læra leiklist eða leikritun?
Nokkur pláss hafa losnað á tveimur námskeiðum í sumar í Leiklistarskóla BÍL. Annarsvegar er það á Leiklist I sem Ágústa Skúladóttir kennir og hinsvegar Leikritun II sem er í umsjá Karls Ágústs Úlfssonar. Nánar má fræðast um námskeiðin og skólann...
Ert þú á leið í Leiklistarskóla BÍL?
Eins og venjulega mun leikfélagið styrkja félagsmenn til náms í Leiklistarskóla BÍL í sumar. Upphæðin fer eftir fjölda umsækjanda. Skilyrði fyrir styrk eru að viðkomandi sé skuldlaus meðlimur, hafi starfað með félaginu einhverntíma á undanförnum tveimur árum og...
Leiklistarnámskeið/kynning í Leikhúsinu
Guðrún Sóley sem hefur starfað með leikfélaginu og er nú nemandi í leiklist við Royal Conservatoire of Scotland (betur þekktur sem Royal Scottish) heldur leiklistarnámskeið í Leikhúsinu Funalind 2 á Skírdag, fimmtudaginn 17. apríl. Royal Scottish er einn fremsti...
Leiklistarnámskeið fyrir nýliða
Mánudaginn 3. mars hefst leiklistarnámskeið á vegum leikfélagsins sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Námskeiðið stendur í tvær vikur, hist verður sex sinnum, á mán., fim....
Fullbókað á nýliðanámskeið
Fullbókað er á námskeið fyrir nýliða sem hefst núna á mánudag 10. feb. og biðlisti hefur myndast. Verið er að skoða möguleika á að hafa annað samskonar námskeið sem mun hefjast í byrjun mars. Áhugasamir geta sent póst á lk@kopleik.is og beðið um að vera á lista. Nánar...
Námskeið fyrir nýliða
Mánudaginn 10. febrúar hefst leiklistarnámskeið á vegum leikfélagsins sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Námskeiðið stendur í tvær vikur, hist verður sex sinnum, á mán.,...
Leiklistarsaga
Föstudaginn 4. okt. verður fitjað upp á nýjung í félagsstarfinu. Þá efnir Hörður Sigurðarson til fyrirlesturs um leiklistarsöguna. Fyrirlesturinn verður í tveimur hlutum, sá fyrri verður fluttur í Leikhúsinu föstudaginn 4. okt. og hefst kl. 19.30 en sá seinni...
Leiklistarnámskeið fyrir unglinga fædda 1991-1994
Leikfélag Kópavogs heldur leiklistarnámskeið fyrir unglinga með yfirskriftinni "Að segja sögu á sviði". Kennari er Anna Brynja Baldursdóttir sem hefur numið leiklist í Rose Bruford College á Englandi og hefur einnig lokið námi í kennslufræðum frá Listaháskóla Íslands....
Leiklistarnámskeið fyrir unglinga
Leiklistarnámskeið fyrir unglinga er hafið hjá Leikfélagi Kópavogs. Námskeiðið er ætlað ungu fólki í Kópavogi í 8. til 10. bekk grunnskóla. Æfingar er tvisvar í viku þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 16:30 til 18:30. Námskeiðið er fram yfir áramót og endar svo með...
Námskeið í leikritun
Leikfélag Kópavogs verður með námskeið í leikritun bráðlega og stjórn þess verður í styrkum höndum Hrefnu Friðriksdóttur. Á námskeiðinu verður farið í leikritun og verður sjónum einkum beint að skrifum á styttri verkum/einþáttungum. Námskeiðið verður 30 klst. og...


